

Viðskiptastjóri hjá Icepharma Velferð
Viltu taka þátt í að móta heilbrigðis- og velferðarþjónustu framtíðarinnar?
Icepharma Velferð leitar að drífandi, lausnamiðuðum og metnaðarfullum viðskiptastjóra með menntun á sviði hjúkrunarfræði eða annarra heilbrigðisvísinda, brennandi áhuga á tækni og nýjum lausnum og metnað til að taka þátt í framþróun heilbrigðiskerfisins með tilkomu tækninnar.
Við leitum að einstaklingi sem sér tækifæri þar sem aðrir sjá áskoranir, er óhræddur við að prófa nýjar leiðir og hefur áhuga á að þróa þjónustu sem getur breytt því hvernig heilbrigðis- og velferðarþjónusta er veitt.
Um er að ræða tímabundið starf til 12-15 mánaða.
Icepharma Velferð vinnur að innleiðingu og uppbyggingu nýrra heilbrigðis- og velferðartæknilausna sem styðjur fólk til að lifa sínu lífi á eigin forsendum og gera umönnunaraðilum kleift að veita örugga, faglega og skilvirka þjónustu.
- Vinna að innleiðingu og uppbyggingu nýrra velferðar- og heilbrigðistæknilausna
- Greina og þróa ný viðskiptatækifæri og þjónustuleiðir fyrir heilbrigðis- og velferðarkerfið
- Byggja upp og þróa sterk viðskiptatengsl við heilbrigðisstofnanir, sveitarfélög og aðra samstarfsaðila
- Kynna nýjar lausnir, veita ráðgjöf og fylgja verkefnum eftir frá fyrstu hugmynd að innleiðingu
- Vinna náið með erlendum birgjum og samstarfsaðilum að þróun markaðarins
- Greina þarfir viðskiptavina og finna lausnir sem skapa raunverulegt virði
- Taka þátt í verkefnastýringu, tilboðsgerð, útboðum og samningum
- Þátttaka í kynningum, fundum, ráðstefnum og fræðslu hérlendis og erlendis
- Hjúkrunarfræði eða sambærileg menntun í heilbrigðisvísindum
- Brennandi áhugi á tækni, nýsköpun og nýjum lausnum í heilbrigðisþjónustu
- Lausnamiðað hugarfar, frumkvæði og drifkraftur
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Vilji og hugrekki til að prófa nýjar leiðir og takast á við verkefni þar sem ekki er alltaf fyrirfram ákveðin lausn
- Hæfni til að sjá tækifæri, þróa hugmyndir og koma þeim í framkvæmd
- Framúrskarandi samskipta- og tengslamyndunarhæfni
- Hæfni til að setja sig hratt inn í nýjar og flóknar lausnir og miðla þeim á skýran hátt
- Reynsla af sölu, ráðgjöf, verkefnastýringu eða viðskiptaþróun er kostur
- Mjög gott vald á íslensku og ensku
Sjá nánar um vinnustaðinn hér.
English
Icelandic










