A4
A4
A4

A4 Heildsala - söluráðgjafi

Við auglýsum eftir þjónustulunduðum og söludrifnum einstakling í liðsheild okkar í heildsölu A4. Um er að ræða fullt starf til framtíðar á frábærum vinnustað og er vinnutíminn er alla virka daga.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða samkvæmt nánara samkomulagi.

Helstu verkefni:

  • Sala, þjónusta og ráðgjöf til viðskiptavina
  • Tilboðsgerð og eftirfylgni
  • Þjónusta og samskipti við núverandi viðskiptavini
  • Öflun nýrra viðskiptavina
  • Áfylling og framsetning á vörum hjá viðskiptavinum
  • Önnur tilfallandi verkefni

Hæfniskröfur:

  • Söluhæfileikar og fagleg framkoma
  • Góðir samskiptahæfileikar og rík þjónustulund
  • Góð tölvukunnátta og tölulæsi
  • Gott vald á íslenskri og enskri tungu
  • Heiðarleiki, frumkvæði og vönduð vinnubrögð
  • Gilt ökuskírteini, stundvísi og hreint sakavottorð


Umsóknarfestur er til og með 5 október 2026.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Bylgja Bára Bragadóttir, sölustjóra í síma 580-0000 eða gegnum netfangið [email protected]. 

A4 er framsækið fyrirtæki og leggur metnað sinn í að vera í fararbroddi á sviði húsgagna, skrifstofu-, skóla-, föndur- og hannyrðavara og leggur áherslu á góða og trausta þjónustu við viðskiptavini. Við erum stolt af því að geta boðið upp á heimsþekkt vörumerki sem eiga það öll sameiginlegt að vera í háum gæðaflokki. Hjá fyrirtækinu starfa um 130 manns.

Advertisement published23. September 2026
Application deadline5. October 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Köllunarklettsvegur 10, 104 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags