Garðabær
Garðabær leggur áherslu á að veita íbúum bæjarins framúrskarandi þjónustu og sækist eftir að ráða til starfa metnaðarfulla og færa einstaklinga sem eru jákvæðir, faglegir og áreiðanlegir.
Starfsemi bæjarins býður upp á mörg skapandi, fjölbreytt og skemmtileg störf í lifandi umhverfi.
Heilsuleikskólinn Bæjarból auglýsir eftir leikskólakennara
Heilsuleikskólinn Bæjarból auglýsir eftir leikskólakennara í 100% stöðu. Leikskólinn er fjögurra deilda og þar eru börn á aldrinum 1- 5 ára. Lögð er áhersla á hreyfingu, hreysti og útiveru í starfi leikskólans.
Einkunnarorð leikskólans eru: Leikgleði - Agi - Lífsleikni
Leikskólastjórar eru Auður Ösp Guðjónsdóttir og Harpa Dan Þorgeirsdóttir
Helstu verkefni og ábyrgð
- Vinnur með og undir stjórn deildarstjóra
- Vinnur að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara þ.m.t. að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfi undir stjórn deildarstjóra.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leyfisbréf til kennslu* (leyfisbréf fylgi umsókn)
- Að lágmarki 90 námseiningar á einu námssviði aðalnámskrár og menntunarfræði leikskóla
- Reynsla af starfi á leikskólastigi eða starfi með börnum er æskileg
- Góð íslenskukunnátta er skilyrði. Miðað er við stig B2 skv. evrópska tungumálarammanum
- Góð samskiptahæfni
- Sveigjanleiki
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
*Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu er leitað eftir einstaklingi með aðra menntun og/eða reynslu sem nýtist í starfi sbr. lög nr. 95/2019.
Hlunnindi í starfi
- Á Bæjarbóli er 36 stunda vinnuvika. Sérstök skráning barna er í vetrar- og jólafríi en lokað er í dymbilviku, sem og 2. janúar vegna dreifingar vinnutíma starfsfólks.
- Leikskólinn lokar kl 16:00 á föstudögum en 16:30 aðra daga.
- Forgangur í leikskóla fyrir börn starfsfólks með lögheimili í Garðabæ og í 75% starfshlutfalli eða meira.
- 40% afsláttur á leikskólagjöldum fyrir starfsfólk með lögheimili í Garðabæ.
- Eftir þrjá mánuði í starfi getur starfsfólk fengið frítt árskort í sundlaugar bæjarins, bókasafnskort og menningarkort í Hönnunarsafn Íslands. Auk þess sem hægt er að fá styrk til hreyfingar eftir sex mánuði í starfi.
- Í leikskólum Garðabæjar er 25% stöðugildi vegna snemmtækrar íhlutunnar á hverri deild og aukalegt 50% stöðugildi á yngstu deild ef fjöldi barna á aldrinum 1-2 ára eru fleiri en tíu á deild.
- Skipulagsdagar eru fimm á skólaári og eru samræmdir í leik- og grunnskólum Garðabæjar.
- Hægt er að sækja um námstengda styrki til að efla faglegt leikskólastarf.
Advertisement published8. January 2025
Application deadline30. January 2025
Language skills
Icelandic
Very goodRequired
Location
Bæjarbraut 7, 210 Garðabær
Type of work
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)
Leikskólakennari - leikskólaliði í Ösp
Leikskólinn Ösp
Tómstundaleiðbeinandi í félagsmiðstöðina Skarðið – Skarðshlíðarskóli
Hafnarfjarðarbær
Leikskóla- og frístundaliði - Leikskólinn Stekkjarás
Hafnarfjarðarbær
Kennarar - Leikskólinn Stekkjarás
Hafnarfjarðarbær
Tengiliður farsældar, verkefnastjóri móttöku, kennari
Austurbæjarskóli
Sérkennslustjóri
Leikskólinn Tjörn
Skóla- og frístundaliði í Skarðsel - Skarðshlíðarskóli
Hafnarfjarðarbær
Sérkennsla - HOLT
Leikskólinn Holt
Frístundarleiðbeinandi á Reyðarfirði
Fjarðabyggð
Kennari, fullt starf
Seltjarnarnesbær
Starfsmaður á leikskóla, fullt starf
Seltjarnarnesbær
Íþróttafræðingur óskast á Skjól
Skjól hjúkrunarheimili