Fjarðabyggð
Fjarðabyggð
Fjarðabyggð

Frístundaleiðbeinandi í félagsmiðstöðvum í Neskaupstað, Eskifirði og Reyðarfirði

Leitast er eftir drífandi, hugmyndaríkum og ábyrgum einstaklingum í fjölbreytt og skemmtilegt starf með ungmennum í Fjarðabyggð. Ef þú ert hugmyndarík/ur, skapandi og hefur áhuga á starfi með ungmennum, Þá erum við að leita að þér!

Fjarðabyggð er öflugt og ört vaxandi samfélag sem leggur mikla áherslu á velferð og málefni allra íbúa. Á fjölskyldusviði Fjarðabyggðar er lögð áhersla á þverfaglega vinnu og stuðning starfsmanna í teymisstarfi við úrlausn margþættra verkefna sem tengjast stuðningsþörfum ólíkra einstaklinga jafnt fullorðinna og barna með það markmið að efla lífsgæði og hagsæld þeirra.

Frístundaleiðbeinandi í félagsmiðstöð ber ábyrgð ásamt forstöðumanni á framkvæmd félagsmiðstöðvarstarfs fyrir ungmenni á aldrinum 10 - 16 ára. Markmið starfsins er að bjóða upp á heildstæða og faglega þjónustu þar sem uppeldisgildi frítímastarfs eru höfð að leiðarljósi. Í því felst að skapa umhverfi og aðstæður í frístundastarfi þar sem hægt er að þjálfa lykilfærni hjá börnum og unglingum með áherslu á samskiptafærni, félagsfærni, virkni og þátttöku, ásamt styrkingu sjálfsmyndar. Bjóða skal upp á fjölbreytt viðfangsefni sem höfðar til barna og unglinga með mismunandi áhugasvið og tryggja þeim öruggar aðstæður þannig að þeim líði vel í félagsmiðstöðinni.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Tekur þátt í skipulagningu starfs félagsmiðstöðva í samvinnu við forstöðumann og deildastjóra frístunda barna og unglinga.
  • Ber ábyrgð á því að dagskrá sé fylgt eftir.
  • Starfar með börnum og unglingum í félagsmiðstöðinni.
  • Sinnir hefðbundnum opnunum félagsmiðstöðva og verkefnum sem fylgja þeim s.s. undirbúningi og frágangi.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Æskilegt að frístundaleiðbeinandi hafi menntun sem nýtist í starfi. 
  • Reynsla af starfi með börnum og ungmennum
  • Umsækjendur þurfa að búa yfir ákveðinni festu, hafa góða skipulags- og stjórnunarhæfileika, vera liprir í mannlegum samskiptum og hafa hreina sakaskrá.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum, jákvætt viðmót, góð samstarfshæfni og geta til að miðla upplýsingum.
  • Heiðarleiki og stundvísi, auk þess sem starfsmaður þarf að vera laus við fordóma.
  • Frumkvæði, sjálfstæði og skipulagshæfni.
  • Hæfni til að bregðast við óvæntum aðstæðum og vilji til að taka þátt í breytingum.
  • Geta til að tekið virkan þátt í hugmyndavinnu og breytingum með jákvæðni og samvinnu.
  • Gott vald á íslenskri tungu
Advertisement published25. September 2025
Application deadline10. October 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Intermediate
Location
Hafnargata 2, 730 Reyðarfjörður
Type of work
Professions
Job Tags