
Hólabrekkuskóli
Hólabrekkuskóli er framsækinn grunnskóli sem leggur áherslu á skapandi vinnu með nemendum. Ef þú ert metnaðarfullur kennari sem hefur gaman af því að vinna í faglegum og skemmtilegum starfsmannahópi þá viljum við fá þig til liðs við okkur.
ÍSAT kennari Hólabrekkuskóla
Hólabrekkuskóli óskar eftir ÍSAT kennara til starfa í stoðþjónustu skólans. Mikil gróska einkennir skólaþróun í Hólabrekkuskóla og áhersla er lögð á skapandi starf, teymiskennslu, fjölbreytta gagnreynda kennsluhætti og uppbyggileg samskipti. Leiðarljós skólans er virðing, gleði og umhyggja.
Hólabrekkuskóli er heildstæður grunnskóli með rúmlega 500 nemendur og 80 starfsmenn. Sérstök áhersla er lögð á mál og læsi.
Ef þú ert framsækinn kennari og hefur brennandi áhuga á fjölbreyttu skólastarfi þá viljum við í Hólabrekkuskóla endilega fá þig til liðs við okkur.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Íslenskukennsla fyrir nemendur með annað móðurmál en íslensku.
- Skapandi vinna með nemendum með áherslu á lestur og málörvun.
- Teymiskennsla - fagleg vinnubrögð og samvinna.
- Samstarf við starfsfólk, foreldra og sérfræðinga utan skólans.
- Vinna samkvæmt stefnu skólans.
- Vinna að jákvæðum skólabrag.
- Önnur afmörkuð verkefni innan skólans.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leitað er eftir jákvæðum, lausnamiðuðum og metnaðarfullum fagmanni.
- Framúrskarandi færni í mannlegum samskiptum.
- Leyfi til að nota starfsheitið grunnskólakennari.
- Þekking og hæfileikar til að vinna að framsæknu skólastarfi.
- Íslenskukunnátta á stigi C2 samskvæmt samevrópska matskvarðanum.
- Stundvísi og samviskusemi.
Fríðindi í starfi
- Heilsuræktarstyrkur
- Samgöngusamningur
- Frítt í sund með ÍTR kortinu
- Bókasafnskort og frítt á söfn með menningarkortinu
Advertisement published22. September 2025
Application deadline6. October 2025
Language skills

Required
Location
Bakkastaðir 2, 112 Reykjavík
Suðurhólar 10, 111 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags
Other jobs (1)
Similar jobs (12)

Skóla- og frístundaleiðbeinandi í Hörðuvallaskóla
Hörðuvallaskóli

Deildarstjóri óskast í Læk á yngri deild
Lækur

Starfskraftur á 5 ára kjarna í Barnskóla Hjallastefnunnar í Garðabæ
Hjallastefnan

Leikskólakennari óskast
Framtíðarfólk ehf.

Leikskólinn Áshamar: Hlutastarf/Fullt starf
Framtíðarfólk ehf.

Kennari í stoðþjónustu Hólabrekkuskóla
Hólabrekkuskóli

Urriðaholtsskóli óskar eftir ÍSAT-kennara á grunnskólastig
Urriðaholtsskóli

Frístundaleiðbeinandi í félagsmiðstöðvum í Neskaupstað, Eskifirði og Reyðarfirði
Fjarðabyggð

Kennari/leiðbeinandi óskast í leikskólann Ós.
Barnaheimilið Ós

Starf í skóla og frístund Smáraskóla
Smáraskóli

Stuðningsfulltrúi Smáraskóla
Smáraskóli

Deildarstjóri - Bríetartún
ungbarnaleikskóli - Bríetartún