
Rafal ehf.
Rafal er leiðandi í þróun, framleiðslu og uppbyggingu raforkuinnviða með yfir 40 ára reynslu í faginu. Við sérhæfum okkur í hönnun, smíði og samsetningu hátæknilausna, þar á meðal tengivirkja, dreifistöðva, spenna, ljósleiðaraneta, snjalllausna og götulýsingar fyrir veitu og orkufyrirtæki, stóriðju og sveitarfélög. Við erum vel búin sérhæfðum búnaði og tökum að okkur bilana- og ástandsgreiningar auk prófana fyrir rafveitur.
Í dag starfa um 150 starfsmenn. Rafal býður upp á traustan og dýnamískan vinnustað þar sem vöxtur og velferð starfsfólks er höfð að leiðarljósi.

Framkvæmdastjóri - viltu móta snjalla framtíð?
Tækifæri til að byggja upp nýtt hátæknifélag á sterkum grunni
Nýtt og metnaðarfullt félag er að verða til á öflugum grunni Nova og Rafal með það markmið að verða leiðandi í stafrænum innviðum, IoT lausnum og gagnadrifinni þjónustu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Byggja upp og leiða nýtt félag í nánu samstarfi við eigendur
- Móta og innleiða skýra stefnu og metnaðarfulla vaxtaráætlun
- Leiða öflugt teymi sérfræðinga í þróun IoT lausna sem umbreyta flóknum tæknilegum áskorunum í einfaldar og skýrar lausnir sem skapar aunverulegt virði fyrir viðskiptavini
- Uppbygging nýrra tekjulinda með áherslu á fyrirtækjamarkað og gagnadrifnar lausnir
- Nýta samlegð milli 5G innviða Nova og IoT lausna Rafal
Menntunar- og hæfniskröfur
- Hefur sterka reynslu af rekstri, þar á meðal fjárhagsstýringu, áætlanagerð og uppgjöri
- Hefur reynslu af uppbyggingu og vexti fyrirtækja eða rekstrareininga og metnað til að byggja upp öfluga einingu frá grunni.
- Hefur góða innsýn og áhuga á tæknidrifnum lausnum, innviðum og IoT
- Hefur skýran skilning á því hvernig sterk menning og sameiginleg sýn knýr fólk áfram
- Hefur þekkingu á og skilning á markaðsmálum og hvernig ná má til viðskiptavina
- Kemur fram af öryggi og fagmennsku og býr yfir framúrskarandi samskiptahæfni
Advertisement published10. April 2026
Application deadline30. April 2026
Language skills
EnglishRequired
IcelandicRequired
Type of work
Professions
Job Tags
Other jobs (2)
Similar jobs (6)




