
Rafal ehf.
Rafal er leiðandi í þróun, framleiðslu og uppbyggingu raforkuinnviða með yfir 40 ára reynslu í faginu. Við sérhæfum okkur í hönnun, smíði og samsetningu hátæknilausna, þar á meðal tengivirkja, dreifistöðva, spenna, ljósleiðaraneta, snjalllausna og götulýsingar fyrir veitu og orkufyrirtæki, stóriðju og sveitarfélög. Við erum vel búin sérhæfðum búnaði og tökum að okkur bilana- og ástandsgreiningar auk prófana fyrir rafveitur.
Í dag starfa um 150 starfsmenn. Rafal býður upp á traustan og dýnamískan vinnustað þar sem vöxtur og velferð starfsfólks er höfð að leiðarljósi.

Raflagnahönnuður á tæknisviði
Raflagnahönnuður óskast – Taktu þátt í vaxandi orkugeira! ⚡️
Orkugeirinn er á hraðri uppleið og tækifærin til að efla starfsemi okkar hafa aldrei verið fleiri. Við leitum að drífandi raflagnahönnuði sem vill vera hluti af öflugu teymi, taka þátt í spennandi þróunarverkefnum og hafa áhrif á framtíð orkumála.
Tæknisvið styður aðrar deildir með hönnun, sérfræðiráðgjöf og þróun tæknilegra lausna. Sviðið sér um samninga og innkaup á stærri búnaði fyrir verkefni og efnissölu, auk samskipta við samstarfsaðila og aðkeypta þjónustu. Einnig veitir tæknisvið ráðgjöf og verkfræðiþjónustu fyrir viðskiptavini Rafal, þar á meðal orkufyrirtæki í framleiðslu, flutningi og dreifingu, sem og orkufrekan iðnað og stofnanir.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Hönnun smá,- lág- og háspennukerfa
- Hönnun stjórnkerfa
- Gerð útboðsgagna og kostnaðaráætlanagerð
- Eftirlit
Menntunar- og hæfniskröfur
- Rafmagns verk-, tækni- eða iðnfræði
- Sveinspróf í rafvirkjun
- Reynsla af notkun BIM, Revit og Autocad
- Reynsla af því að starfa sem rafvirki, einkum i iðnaðarumhverfi.
- Reynsla af iðnstýringum
- Kunnátta á hugbúnaðinum EPLAN
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Lausnamiðuð hugsun og hæfni til að vinna með hópi fólks
- Skipulögð vinnubrögð og nákvæmni
- Metnaður fyrir faglegum vinnubrögðum og prófun í starfi
- Góð færni í íslensku og ensku, bæði töluðu og rituðu máli.
Fríðindi í starfi
- Vandað og öruggt vinnuumhverfi
- Tækifæri til að starfa við spennandi og krefjandi verkefni
- Góður starfsandi og stuðningur innan teymisins
- Niðurgreiddur hádegisverður
- Íþróttastyrkur
- Árlegar heilsufarsmælingar
Advertisement published1. April 2026
Application deadline19. April 2026
Language skills
IcelandicRequired
Location
Hringhella 9, 221 Hafnarfjörður
Type of work
Skills
ElectricianTechnologist
Professions
Job Tags
Other jobs (2)
Similar jobs (12)

VERKSTÆÐISFORMAÐUR
RST Net ehf.

Framleiðslustjóri
Njörður

Hönnuður og ráðgjafi í bruna- og öryggiskerfum
Örugg verkfræðistofa ehf

Rafvirki í tæknideild
Coca-Cola á Íslandi

Rafvirki farangurskerfis
Isavia / Keflavíkurflugvöllur

Tengdu þig við okkur - rafvirki í Borgarnesi
Rarik ohf.

Rafvirki
Raf-X

Ertu sérfræðingur í spennum, olíugreiningum og há- og lágspennubúnaði?
Rafal ehf.

Tæknimaður - Kæli- og frystibúnaður
Fossraf ehf

Tæknimaður heilbrigðistækja
Fastus

Sérfræðingur í framkvæmdareftirliti
COWI

Lagna- og loftræsihönnuður
Pascal ehf.