Rafal ehf.
Rafal ehf.
Rafal ehf.

Ertu sérfræðingur í spennum, olíugreiningum og há- og lágspennubúnaði?

Við leitum að rafmagnsverkfræðingi eða rafmagnstæknifræðingi til að styrkja teymið okkar við greiningu og ástandsmat raforkubúnaðar.

Helstu verkefni og ábyrgð

Helstu verkefni

  • Greining og ráðgjöf vegna bilana í aflspennum og dreifispennum.
  • Yfirferð og túlkun á mæligögnum, t.d. DGA, rafrýmdarmælingum, hlutfallsmælingum og hitamyndum.
  • Úrvinnsla og greining á olíusýnum.
  • Þátttaka í ástandsgreiningu spenna og háspennubúnaðar.
  • Eftirlit, skráning og skýrslugerð til viðskiptavina.
  • Stuðningur við verkstæði og verkefnastjóra við þjónustu, prófanir og verklagsgerð.
  • Þátttaka í innleiðingu nýrra greiningartækja, t.d. olíugreininga, skynjara og vöktunarbúnaðar.
  • Verkefni séu unnin skv. gæða- og öryggismarkmiðum
Menntunar- og hæfniskröfur
  • BSc/MSc í rafmagnsverkfræði eða rafmagnstæknifræði.
  • Hæfni í greiningarvinnu og úrvinnslu gagna.
  • Þekking eða áhugi á: spennum, olíugreiningum og há- og lágspennubúnaði
  • Færni í skýrslugerð og framsetningu gagna.
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
  • Færni í samskiptum og teymisvinnu með tæknifólki og viðskiptavinum.
Fríðindi í starfi
  • Vandað og öruggt vinnuumhverfi
  • Tækifæri til að starfa við spennandi og krefjandi verkefni
  • Góður starfsandi og stuðningur innan teymisins
  • Niðurgreiddur hádegisverður
  • Íþróttastyrkur
  • Árlegar heilsufarsmælingar
Advertisement published7. April 2026
Application deadline19. May 2026
Language skills
EnglishEnglish
Required
Expert
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Hringhella 9, 221 Hafnarfjörður
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ElectricianPathCreated with Sketch.TechnologistPathCreated with Sketch.Engineer
Professions
Job Tags