Viridi ehf.
Viridi ehf.

Viðskiptastjóri/framkvæmdastjóri SaaS lausna

Við leitum að drífandi og metnaðarfullum viðskiptastjóra/framkvæmdastjóra til að kynna og selja okkar lausnir til fyrirtækja með rekstrarlegan ávinning viðskiptavina að leiðarljósi.

Viðkomandi mun bera ábyrgð á að finna og þróa ný viðskiptatækifæri, byggja upp sterkt tengslanet og leiða söluferlið frá fyrstu snertingu til loka. Við leitum að einstaklingi sem hugsar í lausnum og skilur þarfir viðskiptavina.

Þetta er ekki hefðbundið sölustarf - hér færð þú svigrúm til að prófa nýjar leiðir, hafa áhrif á stefnu og sýn félagsins til lengri tíma litið. Þú munt vinna náið með stjórnendum og fá innsýn í alla lykilþætti rekstrarins.

Starfið býður upp á veruleg tækifæri til vaxtar og áhrifa innan fyrirtækisins. Fyrir rétta aðila felst í hlutverkinu möguleiki á hraðri þróun í starfi og aukinni ábyrgð, með skýra framtíðarsýn um að geta vaxið inn í leiðtogahlutverk, þar á meðal framkvæmdastjórastöðu til lengri tíma.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Finna og þróa ný sölutækifæri á markaði.
  • Greina umhverfi fyrirtækja og meta mögulegan ávinning af lausnum fyrirtækisins.
  • Halda kynningar og sjá um innleiðingar.
  • Hafa umsjón með söluferli, tilboðs- og samningagerð.
  • Byggja upp og viðhalda langtímasamböndum með ávinning að leiðarljósi.
  • Nýta innsýn í markað og samkeppni til að styrkja stöðu fyrirtækisins.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi (t.d. viðskiptafræði, verkfræði, tölvunarfræði eða tengdar greinar).

  • Viðbótarþekking eða reynsla á sviði tækni, gagna eða rekstrarráðgjafar er sterkur kostur.
  • Reynsla af ráðgjöf og sölu, helst SaaS eða tæknilausnum.

  • Skilningur á rekstrarumhverfi, gervigreind og áskorunum fyrirtækja.

  • Framúrskarandi samskiptahæfni og væntingastjórnun.

  • Drifkraftur, sjálfstæði og markmiðasetning.
Fríðindi í starfi
  • Samkeppnishæft starfsumhverfi.
  • Tækifæri til starfsþróunar í nýsköpunarumhverfi.
  • Fræðslu og stuðning til að ná árangri.
  • Starf í teymi með ávinning starfsmanna og viðskiptavina að leiðarljósi.
Advertisement published8. April 2026
Application deadline8. May 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Háaleitisbraut 68, 103 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Public relationsPathCreated with Sketch.Tech-savvyPathCreated with Sketch.Change managementPathCreated with Sketch.DrivePathCreated with Sketch.Dynamics AXPathCreated with Sketch.ProfessionalismPathCreated with Sketch.Clean criminal recordPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.Market analysisPathCreated with Sketch.Driver's licencePathCreated with Sketch.Non smokerPathCreated with Sketch.Definition of target groupsPathCreated with Sketch.NeatnessPathCreated with Sketch.SalesPathCreated with Sketch.Business administratorPathCreated with Sketch.Business relations
Professions
Job Tags