Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Forfallakennari - Engidalsskóli

Engidalsskóli óskar eftir að ráða forfallakennara/stundarkennara.

Engidalsskóli var stofnaður árið 1978, skólinn var sameinaður Víðistaðaskóla fyrir um áratug en endurheimti sjálfstæði sitt aftur haustið 2020 og er mikið uppbyggingarstarf í gangi. Skólinn er lítill og notalegur, hann sækja nemendur í 1.-7. bekk, um 200 nemendur.

Áhersla er lögð á fjölbreytta kennsluhætti, teymisvinnu og velferð og vellíðan nemenda og starfsmanna. Skólinn er heilsueflandi, flaggar Grænfána og er að taka fyrstu skrefin í innleiðingu leiðsagnarnáms. Skólinn starfar samkvæmt Uppeldi til ábyrgðar. Við leggjum mikla áherslu á lestrarnám og er lestur eina heimanám nemenda. Við skólann er einstaklega skemmtileg skólalóð sem býður upp á fjölbreytta möguleika til leikja og útikennslu. Góður starfsandi og jákvæð samskipti eru meðal allra sem í skólanum starfa.

Leiðarljós skólans eru Ábyrgð - Virðing – Vellíðan

Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðunni www.engidalsskoli.is

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Annast kennslu á yngsta og/eða miðstigi í forföllum
  • Vinnur að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk
  • Stuðlar að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og fagaðila
  • Vinnur samkvæmt stefnu skólans
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Haldgóð þekking á kennslufræði námsgreina á yngsta og/eða miðstigi
  • Áhugi á að starfa með börnum og ungmennum
  • Leikni í fjölbreyttum kennsluháttum
  • Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
  • Stundvísi og samviskusemi
  • Góð íslenskukunnátta

Gerð er krafa um hreint sakavottorð við ráðningu.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Margrét Halldórsdóttir skólastjóri, [email protected]

Umsóknarfrestur er til og með 20. október 2025

Greinagóð ferilskrá fylgi umsókn.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Advertisement published6. October 2025
Application deadline20. October 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Breiðvangur 42, 220 Hafnarfjörður
Type of work
Professions
Job Tags
Other jobs (22)
Hafnarfjarðarbær
Umsjónarkennari - Engidalsskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Starfsmaður óskast til starfa í Miðstöðina - úrræði fyrir fatlað fólk
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Starfsmaður á heimili fyrir fatlað fólk – Smárahvammur
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Kennari - Leikskólinn Álfaberg
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Íþróttakennari – Lækjarskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Þroskaþjálfi - Víðistaðaskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Textílkennari - Öldutúnsskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Deildarstjóri – Leikskólinn Arnarberg
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Starfsmaður í skammtímadvöl - Svöluhraun
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Ráðgjafi í málefnum fatlaðs fólks og eldri borgara
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Sérkennari eða þroskaþjálfi - Leikskólinn Stekkjarás
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Skóla- og frístundaliðar í frístundaheimilið Holtasel - Hvaleyrarskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Sérfræðingur á heimili fyrir fatlað fólk - Steinahlíð
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Starfsmaður á heimili fyrir fatlað fólk - Steinahlíð
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Íþróttakennsla – Engidalsskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Náms- og starfsráðgjafi - Lækjarskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Kennari - Leikskólinn Vesturkot
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Skrifstofustjóri– Skarðshlíðarskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Skóla- og frístundaliðar í frístundaheimilið Hraunkot - Víðistaðaskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Kennarar - Skarðshlíðarleikskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Skóla- og frístundaliði - Öldutúnsskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Aðstoðardeildarstjóri tómstundarmiðstöðvar - Engidalsskóli
Hafnarfjarðarbær