

Kennari óskast í 50-100% starf
Viltu vera hluti af góðum og öflugum starfsmannahópi sem vinnur saman að því að mæta ólíkum einstaklingum í krefjandi verkefnum? Má bjóða þér að taka þátt í metnaðarfullu skólastarfi Kvíslarskóla í Mosfellsbæ. Kvíslarskóli er unglingaskóli með 7.-10. bekk sem vinnur í anda uppbyggingarstefnunnar.
Mosfellsbær er öflugt og eftirsótt sveitarfélag þar sem gildin virðing, jákvæðni, framsækni og umhyggja eru leiðarljós starfsmanna í daglegu starfi.
Um tímabundna ráðningu er að ræða, til 31. júlí 2026, með möguleika á framlengingu. Umsóknarfrestur er til og með 30. október. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Umsóknir skulu innihalda starfsferilsskrá sem greinir frá reynslu, menntun og fyrri störfum. Nánari upplýsingar um starfið veitir Heimir Eyvindarson skólastjóri í síma 525-0700. Öllum umsóknum verður svarað. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands ísl. sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands. Ráðið er í öll störf óháð kyni.
- Almenn kennsla
- Leyfisbréf kennara með áherslu á grunnskólastig
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum
- Hugmyndaauðgi, jákvæðni og sveigjanleiki
- Áhugi á starfsþróun, nýjum og fjölbreyttum áherslum í skólastarfi
- Reynsla af Leiðsagnarnámi og Uppbyggingarstefnunni er æskileg












