Flataskóli
Flataskóli er heilsueflandi grænfánaskóli með um 320 nemendur í 1.-7. bekk. Flataskóli er einn af fyrstu réttindaskólum UNICEF á Íslandi og vinnur markvisst með Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Gildi skólans eru menntun, árangur og ánægja.
Flataskóli auglýsir eftir umsjónarkennara í 6.bekkjar teymi
Í Flataskóla er laust til umsóknar starf umsjónarkennara í 6.bekk út skólaárið 2023 - 2024
Í Flataskóla er mikill faglegur metnaður og áhersla lögð á notalegt andrúmsloft, umhyggju og góðan árangur. Í skólanum eru persónuleg samskipti milli nemenda, starfsfólks og foreldra. Samvinna er mikil og góð á milli allra þeirra sem starfa í skólanum. Í skólanum ríkir góður starfsandi og boðið er upp á gott starfsumhverfi.
Í skólanum starfa um 300 nemendur í 1. - 7. bekk og um 50 starfsmenn. Staðan sem um ræðir er umsjónarkennsla í 6. bekk en þangað vantar þriðja kennarann til að leysa af vegna fæðingarorlofs. Lögð er áhersla á fámenna nemendahópa og gott samstarf milli starfsfólks. Flataskóli er Réttindaskóli Unicef og leggur áherslu á leiðsagnarnám.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Sinnir kennslu og hefur umsjón með nemendum
- Skipuleggur nám og kennslu nemenda
- Fylgist með námi og þroska allra nemenda sinna og leitast við að skapa aðstæður sem eru hvetjandi til náms og þroska
- Vinnur að skólaþróun með stjórnendum og samstarfsmönnum, m.a. innleiðingu á námsmenningu leiðsagnarnáms
- Stuðlar að velferð nemenda í samstarfi við fagfólk skólans og forráðamenn
- Þátttaka í teymisvinnu
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf fylgi umsókn)
- Að lágmarki 90 námseiningar á einu námssviði aðalnámskrár og menntunarfræði grunnskóla
- Reynsla af kennslu í grunnskóla
- Lipurð, þolinmæði og færni í mannlegum samskiptum ásamt metnaði í starfi
- Frumkvæði, skipulagshæfni, stundvísi og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Áhugi á skólaþróun
- Íslenskukunnátta á stigi C1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
- Góð færni í upplýsingatækni
Hlunnindi í starfi
- Heilsuræktarstyrkur fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall að upphæð 20.000 kr. eftir 6 mánuði í starfi
- Bókasafnskort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
- Menningarkort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
- Sundlaugarkort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
- Árshátíð er starfsmönnum að kostnaðarlausu
- Íslenskunámskeið fyrir erlenda starfsmenn
Advertisement published15. November 2024
Application deadline28. November 2024
Language skills
Icelandic
IntermediateRequired
Location
Vífilsstaðavegur 123, 210 Garðabær
Type of work
Skills
TeachingHuman relationsTeam work
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)
Starfsmaður á leikskóla
Leikskólinn Lundur ehf
Lausar stöður leikskólakennara
Leikskólinn Hádegishöfði Fellabæ
Leikskólakennarar óskast í spennandi störf
Kópasteinn
Leikskólasérkennari í sérkennsluteymi
Heilsuleikskólinn Kór
Leikskólakennari/leiðbeinandi
Heilsuleikskólinn Kór
Deildarstjóri í teymisvinnu
Heilsuleikskólinn Kór
Sérkennsla í Vinagerði
Leikskólinn Vinagerði
Dagforeldrar - verktakar
Arion banki
ÍSAT kennari Hólabrekkuskóla
Hólabrekkuskóli
Stuðningsfulltrúi Hólabrekkuskóla
Hólabrekkuskóli
Leikskólakennari/leiðbeinandi í Nóaborg, 36 stunda vinnuvika
Leikskólinn Nóaborg
Stuðningsfulltrúi í Hofsstaðaskóla
Hofsstaðaskóli Garðabæ