Sérkennsla í Vinagerði
Sérkennari óskast í leikskólann Vinagerði þar sem Reggio stefnan er í forgrunni og litið er á hvert barn sem einstakt og sem mikilhæfa manneskju. Sérkennari sér m.a. um atferlisþjálfun, leiðsögn og stuðning við börn með sérþarfir inni á deild.
Í Vinagerði er fjölmenningarlegt samfélag barna og starfsfólks sem vinnur eftir gildunum gleði, hvatning og nærgætni. Sérkennari sér um ráðgjöf og eftirfylgd á námi og leik barna sem þurfa sértæka aðstoð og umönnun inn á deild. Unnið er í teymisvinnu þar sem allir hjálpast að og leiðsögn er fengin frá sérkennslustjóra og sérfræðingum frá Norðurmiðstöð.
Vinagerði er þriggja deilda leikskóli með 60 börnum og starfar í anda Reggio Emilia. Við höfum nýlega lokið þróunarverkefni með 5 öðrum skólum í innleiðingu á Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og erum því orðin að Réttindaskóla. Leikskólinn er í gamalgrónu hverfi miðsvæðis í Reykjavík. Í nánasta umhverfi eru fallegar gönguleiðir og staðir sem gaman er að njóta.
Áhersla er lögð á skapandi starf, flæði, frjálsan leik og að umhverfi barnanna veki forvitni og vellíðan. Við nýtum skapandi og náttúrulegan efnivið en auk þess er boðið upp á gott úrval af vönduðu leikefni bæði innan dyra og utan. Útileiksvæði er gott og vel skipulagt. Í Vinagerði starfar metnaðarfullur hópur af fólki með fjölbreytta menntun. Við leggjum mikla áherslu á góðan starfsanda og samvinnu. Við erum einn leikskóli og störfum því sem heild.
Við hvetjum alla áhugasama til að koma í heimsókn og kíkja á heimasíðuna www.vinagerdi.is ásamt instagramsíðuna okkar.
Hjá okkur færð þú frían hádegismat og átt rétt á sund- og menningarkorti. Auk þess er 36 stund vinnuvika og samgöngustyrkur.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Starfið er laust strax.
Að veita barni atferlisþjálfun.
Að veita barni með sérþarfir leiðsögn og stuðning.
Að eiga samstarf við foreldra, fagaðila og aðra ráðgjafa.
Að vinna einstaklingsnámskrá og fylgja henni eftir.
Að sinna þeim verkefnum er varða sérkennslu, og öðrum störfum innan leikskólans, sem yfirmaður felur honum.
Leikskólasérkennaramenntun, þroskaþjálfamenntun, sálfræðimenntun eða önnur sambærileg menntun sem nýtist í starfi
Reynsla af starfi með börnum er æskileg
Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
Frumkvæði, áhugi og metnaður í starfi
Góð íslenskukunnátta
Sund-og menningarkort. Frír hádegismatur. Samgöngustyrkur. 36 stunda vinnuvika.