Garðabær
Garðabær
Garðabær

Heilsuleiksk. Bæjarból leitar að leikskólakennara í stuðning

Heilsuleikskólinn Bæjarból auglýsir eftir leikskólakennara til að sinna stuðningi við barn með sérþarfir í samvinnu við sérkennslustjóra og deildarstjóra. Leikskólinn er fjögurra deilda og þar eru börn á aldrinum 1- 5 ára. Lögð er áhersla á hreyfingu, hreysti og útiveru í starfi leikskólans.
Einkunnarorð leikskólans eru: Leikgleði - Agi - Lífsleikni
Leikskólastjórar eru Auður Ösp Guðjónsdóttir og Harpa Dan Þorgeirsdóttir

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Að sinna barni með sérþarfir
  • Að sjá um að einstaklingsnámskrá sé framfylgt
  • Að starfa í nánu samstarfi við foreldra/forráðamenn, deildarstjóra, sérkennslustjóra, aðra starfsmenn og fagaðila
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf til kennslu* (leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Menntun á sviði sérkennslufræða, sálarfræði, þroskaþjálfunar eða önnur sambærileg menntun er æskileg
  • Að lágmarki 90 námseiningar á einu námssviði aðalnámskrár og menntunarfræði leikskóla
  • Reynsla af starfi á leikskólastigi eða starfi með börnum er æskileg
  • Góð íslenskukunnátta er skilyrði. Miðað er við stig B2 skv. evrópska tungumálarammanum
  • Góð samskiptahæfni
  • Sveigjanleiki
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögðum

 

Hlunnindi
  • Á Bæjarbóli er vinnuskyldan í fullu starfi 36 stundir. Vikulegur vinnutími er 38 stundir og er tveimur klukkustundum safnað upp í frítöku vegna vetrarfría, páska- og jólafría. Sérstök skráning barna er í vetrar- og jólafríi en lokað er í dymbilviku, sem og 2. janúar.
  • Forgangur í leikskóla fyrir börn starfsmanna með lögheimili í Garðabæ og í 75% starfshlutfalli eða meira.
  • 40% afsláttur á leikskólagjöldum fyrir starfsmenn með lögheimili í Garðabæ.
  • Eftir þrjá mánuði í starfi getur starfsfólk fengið frítt árskort í sundlaugar bæjarins, bókasafnskort og menningarkort í Hönnunarsafn Íslands. Auk þess sem hægt er að fá styrk til hreyfingar eftir sex mánuði í starfi.
  • Í leikskólum Garðabæjar er 25% stöðugildi vegna snemmtækrar íhlutunnar á hverri deild og aukalegt 50% stöðugildi á yngstu deild ef fjöldi barna á aldrinum 1-2 ára eru fleiri en tíu á deild.
  • Skipulagsdagar eru fimm á skólaári og eru samræmdir í leik- og grunnskólum Garðabæjar.
  • Hægt er að sækja um námstengda styrki til að efla faglegt leikskólastarf.
Advertisement published15. November 2024
Application deadline5. December 2024
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Intermediate
Location
Garðatorg 7, 210 Garðabær
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.Team work
Professions
Job Tags