

Ert þú QA sérfræðingur?
Við hjá Wise leitum að hæfileikaríkum QA sérfræðingi til að ganga til liðs við öflugt vöruþróunarteymi Wise.
Í starfinu gefst tækifæri á að taka þátt í prófunum og að byggja upp þekkingu og ferla fyrir sjálfvirkar prófanir. Við leitum að kraftmiklum, sjálfstæðum einstaklingi sem á auðvelt með að vinna í hóp og hefur áhuga á krefjandi og fjölbreyttum verkefnum.
Ef þú hefur gaman af því að takast á við krefjandi verkefni, vinna í teymi og hefur ástríðu fyrir nýsköpun og vöruþróun, þá erum við að leita að þér!
Hjá Wise færð þú tækifæri til að:
- Undirbúa, skipuleggja og framkvæma prófanir á hugbúnaði Wise í Microsoft Dynamics 365 Business Central
- Skrifa og keyra sjálfvirkar prófanir
- Innleiða og setja upp handvirkar prófanir
- Taka þátt í sprettum og prófun á nýrri hugbúnaðarvirkni fyrir útgáfu
- Taka þátt í skjölun á handbókum og prófanalýsingum
- Ásamt öðrum verkefnum á borð við aðkomu að gerð myndbanda og annarra skjala
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Þekking og reynsla af handvirkum prófunum
- Þekking á sjálfvirkum prófunum
- Reynsla í forritun er kostur
- Reynsla af Microsoft Dynamics 365 Business Central
- Góð greiningarhæfni og lausnamiðuð hugsun
- Hæfni og geta til að vinna sjálfstætt sem og í hóp
- Frumkvæði og góð samskiptafærni
- Áhugi á sjálfvirknivæðingu og nýjungum í tækniþróun
Um Wise
Wise er ört stækkandi þekkingarfyrirtæki, sérhæft í stafrænum lausnum sem veita viðskiptavinum forskot í þeirra rekstri. Hjá Wise starfa um 160 sérfræðingar í Reykjavík og á Akureyri með áratuga reynslu og þekkingu á sviði alhliða viðskiptalausna. Vinnustaðurinn er fjölskylduvænn, lifandi og skemmtilegur þar sem leitast er við að auka fjölbreytileika í ráðningum. Við leggjum áherslu á hvetjandi starfsumhverfi með markvissri fræðslu og þjálfun, að starfsfólki líði vel í vinnunni og að starfsandi sé eins og best verður á kosið. Jafnframt er boðið upp á samgöngu- og heilsustyrk til starfsfólks.
Við hlökkum til að fá umsóknina þína
Tekið er á móti umsóknum til og með 30. mars 2025.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Bergsveinn Snorrason, forstöðumaður Vöruþróunar Viðskiptalausna ([email protected]) og Harpa Hrund Jóhannsdóttir, á mannauðssviði ([email protected]).













