Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Deildarstjóri – Leikskólinn Hlíðarendi

Leikskólinn Hlíðarendi óskar eftir að ráða deildarstjóra í 100% starfshlutfall frá 1. janúar 2026.

Leikskólinn Hlíðarendi er fjögurra deilda og er staðsettur í útjaðri Setbergshverfis. Helstu áhersluþættir eru hreyfing, lífsleikni og umhverfismennt.

Leikskólar Hafnarfjarðar hafa innleitt betri vinnutíma sem miðast við 36 stunda vinnuviku fyrir allt starfsfólk. Starfsfólk í Félagi leikskólakennara og Þroskaþjálfafélaginu hefur kosið fyrirkomulag sem felur í sér að starfsár þeirra er sambærilegt starfsári grunnskólakennara. Þessir starfsmenn taka því út vinnutímastyttingu í kringum jól og áramót, þegar vetrarfrí er í grunnskólum, í dymbilviku og með lengri fjarveru á sumrin.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Að vinna að og bera ábyrgð á uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu deildarstjóra
  • Að bera ábyrgð á stjórnun, skipulagningu, framkvæmd og mati á faglegu starfi deildarinnar
  • Að bera ábyrgð á að unnið sé eftir skólanámskrá og tryggja að öll börn á deildinni fái kennslu, leiðsögn, umönnun og/eða sérkennslu eftir þörfum
  • Að bera ábyrgð á samstarfi við foreldra
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf til kennslu (í leik-grunn- eða framhaldsskóla sbr. eitt leyfisbréf)
  • Reynsla af sambærilegu starfi kostur
  • Færni í samskiptum og sveigjanleiki
  • Frumkvæði, sjálfstæði í vinnubrögðum og faglegur metnaður
  • Góð íslenskukunnátta
  • Góð tölvukunnátta

Fríðindi í starfi:

  • Heilsuræktarstyrkur
  • 75% afsláttur af leikskólagjöldum
  • Forgangur á leikskóla
  • Bókasafnskort
  • Sundkort

Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu, kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling með reynslu af starfi með börnum, sbr. lög nr. 95/2019. Við hvetjum áhugasama til að sækja um.

Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Nánari upplýsingar um starfið veita Bryndís Guðlaugdóttir leikskólastjóri og Halldóra Eiríksdóttir aðstoðarleikskólastjóri í síma 555 1440. Fyrirspurnir má einnig senda á netfangið [email protected]

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Samband íslenskra sveitafélaga og KÍ v/Félags leikskólakennara.

Umsóknarfrestur er til og með 1. desember 2026.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Advertisement published17. November 2025
Application deadline1. December 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Úthlíð 1, 221 Hafnarfjörður
Type of work
Professions
Job Tags