Leikskólinn Skerjagarður
Leikskólinn Skerjagarður

Þroskaþjálfi/sérkennari óskast á leikskólann Skerjagarð

Leikskólinn Skerjagarður óskar eftir metnaðarfullum og jákvæðum þroskaþjálfa/sérkennara til starfa í sérkennsluteymi skólans. Leitað er að einstaklingi sem hefur áhuga á að vinna náið með börnum og leggja sitt af mörkum í öflugri teymisvinnu.

Skerjagarður er sjálfstætt starfandi skóli.

Á Skerjagarði er lögð áhersla á faglegt starf þar sem einstaklingurinn fær að njóta sín í öruggu umhverfi. Allt nám á að veita börnum ánægju og vekja áhuga á að læra meira. Það sem einkennir okkur á Skerjagarði er að við leggjum okkur fram við að skoða okkur í starfi, taka framförum og höfum metnað til að gera faglegt starf betra.

Ef þú hefur áhuga að starfa í fallegum leikskóla í yndislegu umhverfi í Skerjafirðinum. Í leikskóla þar sem jákvæðni, gleði, frumkvæði sköpun og lýðræði er haft að leiðarljósi. Á Skerjagarði er unnið eftir hugmyndafræði Reggio Emilia. Einkunnarorð skólans eru Gleði – Frumkvæði – Sköpun

Skerjagarður er skemmtilegur vinnustaður þar sem ríkir metnaður og gleðin er höfð i fyrirrúmi.

Eingöngu er tekið við umsóknum í gegnum ráðningavef Alfreðs

Upplýsingar um skólann er að finna á skerjagardur.is

Íslensku kunnátta skilyrði.

Íslenska C1 skv. samevrópska tungumálarammanum

Framtíðarstarf.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Tlbúinn að tileikna sér stefnu og starfsaðferðir Skerjagarðs.
  • Vinna að menntun og uppeldi leikskólabarna með sérþarfir.
  • Skipuleggja og halda utan um sérkennslu í samstarfi við sérkennslustjóra.
  • Veita börnum stuðning og fylgja þeim eftir í leik og starfi.
  • Taka virkan þátt í sérkennsluteymi skólans.
  • Vinna náið með foreldrum, ráðgjöfum og öðru fagfólki.
  • Setja saman einstaklingsnámskrár og fylgja þeim eftir.
  • Veita atferlisþjálfun eftir þörfum.
  • Taka þátt í þróunarvinnu og öðrum verkefnum innan skólans.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • þroskaþjálfamenntun, leikskólakennaramenntun, , sálfræðimenntun eða önnur sambærileg menntun.
  • Reynsla af starfi með börnum er æskileg.
  • Góð samskiptahæfni, lipurð og sveigjanleiki.
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð, frumkvæði og metnaður.
  • Framúrskarandi íslenskukunnátta.
Fríðindi í starfi
  • Frítt fæði
  • Styttri vinnuvika.
  • Íþrótta og samgöngustyrkur
  • Annað
Advertisement published21. November 2025
Application deadlineNo deadline
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Bauganes 13, 101 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.AmbitionPathCreated with Sketch.ConscientiousPathCreated with Sketch.Independence
Work environment
Suitable for
Professions
Job Tags