Sunnulækjarskóli, Selfossi
Sunnulækjarskóli er við Norðurhóla 1 á Selfossi. Hann tók til starfa í ágúst 2004 með 1.- 4. bekk en er nú heildstæður skóli með bekkjardeildir frá 1.- 10. bekk. Sérdeild Suðurlands er deild innan Sunnulækjarskóla og í daglegu tali nefnd Setrið.
Sunnulækjarskóli er skóli sem lærir. Skólinn er samfélag þar sem allir vinna saman að því að læra, þroskast og taka framförum. Við viljum byggja upp sterkt lærdómssamfélag nemenda og starfsmanna og leggjum áherslu á metnaðarfullt skólastarf þar sem virðing og traust ríkir. Góð samvinna starfsfólks, nemenda, foreldra og annarra samstarfsaðila skólans er mjög mikilvæg.
Nemendur eru settir í öndvegi og við viljum rækta með þeim áræði, þrek og þor til að takast á við þau fjölmörgu og fjölbreyttu verkefni sem bíða þeirra á lífsleiðinni. Við viljum að nemendum og starfsfólki líði vel í skólanum og gangi glaðir til starfa.
Í Sunnulækjarskóla vinna allir í teymum. Þannig nýtum við styrkleika og margbreytileika hópsins betur og margar hendur vinna létt verk. Umsjónarkennarar innan árgangs mynda kennarateymi sem og faggreinakennarar, list- og verkgreinakennarar, íþróttakennarar og sérkennarar ásamt þroska- og iðjuþjálfum. Kennarateymin framkvæma og stjórna daglegu skólastarfi tiltekinna árganga eða námshópa. Góð teymisvinna er liður í að byggja upp sterkt lærdómssamfélag í skólanum.
Einkunnarorð skólans eru GLEÐI - VINÁTTA - FRELSI.
Auglýst er tímabundin 100% staða sérkennara
Auglýst er tímabundin 100% staða sérkennara á miðstigi í Sunnulækjarskóla
Sunnulækjarskóli auglýsir eftir drífandi og kraftmiklum grunnskólakennara til skólaloka í vor, 11. júní 2025. Meðal kennslugreina er enska. Í skólanum er lögð áhersla á sveigjanlega og fjölbreytta kennsluhætti, einstaklingsmiðað nám, teymisvinnu kennara í árgangateymi, ábyrgð nemenda og góða samvinnu allra sem að skólastarfinu koma.
Í Sveitarfélaginu Árborg búa rúmlega 12.000 íbúar og starfa um 1000 manns hjá sveitarfélaginu. Lögð er áhersla á að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að vellíðan og árangri þar sem starfað er af fagmennsku og góðum ásetningi með hag sveitarfélagsins að leiðarljósi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Að annast kennslu samkvæmt megin markmiðum aðalnámskrá grunnskóla með hliðsjón af þörfum og þroska nemenda.
- Að fylgjast með velferð nemenda, hlúa að þeim andlega og líkamlega í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins svo að þau fái notið sín sem einstaklinga.
- Annast skipulagningu sérkennslu í samstarfi við deildarstjóra og annað starfsfólk
- Kemur að gerð einstaklingsnámskráa nemenda í samvinnu við umsjónarkennara og deildarstjóra.
- Tekur þátt í teymisvinnu og er í góðu samstarf við aðra starfsmenn.
- Vinnur í nánu samstarfi við samstarfsteymi og foreldra/forráðamenn nemenda í samráði við deildarstjóra
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leyfisbréf grunnskólakennara
- Hæfni og áhugi á skólastarfi
- Kennslureynsla og reynsla af sérkennslu æskileg
- Reynsla af teymisvinnu æskileg
- Færni í mannslegum samskiptum og samvinnu
- Frumkvæði, skipulagshæfileikar og sjálfstæði
- Faglegur metnaður og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
- Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku
Advertisement published23. January 2025
Application deadline30. January 2025
Language skills
Icelandic
IntermediateRequired
Location
Norðurhólar 1, 800 Selfoss
Type of work
Skills
ProactiveHuman relationsIndependencePlanningTeam work
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)
Leikskólakennari / leiðbeinandi
Skaftárhreppur
Íþróttakennari
Skaftárhreppur
Forfallakennari óskast í Snælandsskóla
Snælandsskóli
Auglýst er tímabundin 100% staða grunnskólakennara
Sunnulækjarskóli, Selfossi
Leikur og málörvun - HOLT
Leikskólinn Holt
Frístundarleiðbeinandi í félagsmiðstöðvar Fjarðabyggðar
Fjarðabyggð
Frístundaleiðbeinandi óskast við Félagsmiðstöðina Urra
Garðabær
Deildarstjóri í Vinagerði
Leikskólinn Vinagerði
Kraftmikill og metnaðarfullur deildarstjóri óskast
Leikskólinn Sjáland
Laus staða í Marbakka
Marbakki
Deildarstjóri
Leikskólinn Heiðarborg
Þroskaþjálfi eða leikskólasérkennari óskast á Kópastein
Kópasteinn