
Hrafnista
Hrafnista er stærsta hjúkrunarheimili landsins og alls eru heimilin átta talsins í fimm sveitarfélögum. Þau eru Hrafnista Laugarási, Hraunvangi, Boðaþingi, Ísafold, Skógabæ, Sléttuvegi, Hlévangi og Nesvöllum.
Hjá Hrafnistu starfar öflugur hópur einstaklinga með fjölbreytta menntun, starfsreynslu og með fjölbreyttan bakgrunn.
Ef þú hefur áhuga á að bætast í Hrafnistuhópinn skaltu endilega senda inn umsókn,
Hlökkum til að heyra frá þér.

Aðstoðarhjúkrunardeildarstjóri - Sléttuvegur
Ert þú samviskusamur og skipulagður hjúkrunarfræðingur í leit að nýju starfstækifæri? Hefur þú áhuga á að prófa þig áfram í stjórnunarstöðu en vilt á sama tíma fá að sinna hjúkrun?
Þá erum við mögulega að leita að þér.Hrafnista Sléttuvegi óskar eftir að ráða til sín aðstoðardeildarstjóra hjúkrunar í 90-100% starf.
Aðstoðarhjúkrunardeildarstjóri stendur hjúkrunarvaktir og er staðgengill deildarstjóra í fjarveru hans og aðstoðar við ýmis verkefni tengd rekstri og stjórnun deildar. Aðstoðarhjúkrunardeildarstjórar eru sömuleiðis með ákveðin fagleg ábyrgðarsvið á deildinni og er vaktafyrirkomulag eftir samkomulagi.
Aðstoðarhjúkrunardeildarstjóri er hluti af stjórnendahópi Hrafnistu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Almenn hjúkrun
- Aðstoð við stjórnun og rekstur hjúkrunardeildar
- Skipulag á störfum starfsfólks í samræmi við þarfir þjónustuþega
- Eftirlit og mat á gæðum hjúkrunar
- Ráðgjöf og fræðsla til þjónustuþega og aðstandenda
- Teymisvinna
Menntunar- og hæfniskröfur
- Íslenskt hjúkrunarleyfi
- Reynsla af stjórnun kostur
- Reynsla af RAI mælitækinu kostur
- Frumkvæði, jákvæðni og faglegur metnaður
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum
Fríðindi í starfi
- Heilsuræktarstyrkur
- Samgöngustyrkur með strætó
- Stuðningur til framþróunar í formi leyfa á launum og námstyrkja
- Við bjóðum upp á jákvæðan og skemmtilegan starfsanda, áhugaverð verkefni og starf sem er í sífelldri þróun
Advertisement published3. November 2026
Application deadline17. November 2026
Language skills
IcelandicRequired
Location
Brúnavegur 13, 104 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags
Other jobs (5)
Similar jobs (12)

Sjúkraliði á kviðarhols- og þvagfæraskurðdeild
Landspítali

Sérfræðingur í hjúkrun - Dag- og göngudeild Barnaspítala Hringsins
Landspítali

Sérfræðingur í hjúkrun barna - Göngudeild Barnaspítala Hringsins
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur á göngudeild lungna A3
Landspítali

Hjúkrunarfræðingar á geðgjörgæslu 32C
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur í dagþjónustu 60 - 80%
MS Setrið

Deildarstjóri hjúkrunar Droplaugarstöðum
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Hjúkrunarfræðingur á hjarta-, lungna-, augnskurðdeild og nýrnalækningadeild 12G
Landspítali

Aðstoðarhjúkrunardeildarstjóri - Skógarbær
Hrafnista

Hjúkrunarfræðingur á erfða- og sameindalæknisfræðideild
Landspítali

Hjúkrunardeildarstjóri dag- og göngudeildar blóð- og krabbameinslækninga
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur í Áhættumati persónutrygginga
TM