Hrafnista
Hrafnista
Hrafnista

Iðjuþjálfi - Hrafnista Hraunvangi

Hrafnista Hraunvangi óskar eftir að ráða til sín iðjuþjálfa í endurhæfingardeild.Starfshlutfall er 80 - 100%.


Starfið er fjölbreytilegt og krefst sjálfstæðra vinnubragða, lausnamiðaðrar hugsunar og góðrar samskiptahæfni.Um er að ræða spennandi starf sem býður upp á mikinn sveigjanleika og öfluga liðsheild ásamt mótun og þróun á starfinu.


Á Hrafnistu leitast iðjuþjálfar við að starfa einstaklingsmiðað þannig að þarfir hvers og eins séu hafðar að leiðarljósi, að viðkomandi hafi hlutverk og fái tækifæri til að njóta iðju sem hann hefur áhuga á hverju sinni. Þannig hefur þátttakan jákvæð áhrif á heilsu og vellíðan einstaklingsins.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ábyrgð á þeirri iðjuþjálfun sem hann veitir og mat á árangri meðferðar
  • Meta færni, veita færniþjálfun og ráðgjöf
  • Skráning og skýrslugerð
  • Fræðsla og skipulagning starfa aðstoðarfólks iðjuþjálfa á deild
  • Fræðsla og hópastarf til íbúa og aðstandenda
  • Þátttaka í hópastarfi
  • Þátttaka í þverfaglegu samstarfi/teymi
  • Þátttaka í fagþróun
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Íslenskt starfsleyfi sem iðjuþjálfi
  • Hæfni í mannlegum samskiptum og jákvætt viðhorf
  • Skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Íslenskukunnátta
Fríðindi í starfi
  • Heilsuræktarstyrkur
  • Samgöngustyrkur með strætó
  • Stuðningur til framþróunar í formi leyfa á launum og námsstyrkja.
  • Við bjóðum upp á jákvæðan og skemmtilegan starfsanda, áhugaverð verkefni og starf sem er í sífelldri þróun.
Advertisement published27. October 2026
Application deadline6. November 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Intermediate
Location
Hraunvangur 7, 220 Hafnarfjörður
Type of work
Professions
Job Tags