

Sérfræðingur á Læk - athvarfið Lækur
Viltu hafa jákvæð áhrif á líf fólks?
Leitað er að metnaðarfullum og áhugasömum einstaklingi sem sérfræðing á Læk, sem er athvarf fyrir einstaklinga með geðrænar áskoranir. Markmið Lækjar er að draga úr félagslegri einangrun og auka lífsgæði. Í boði er spennandi og lærdómsríkt starf með fjölbreyttum verkefnum.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Virkja gesti á þeirra forsendum/fjölbreytt verkefni
- Leitast við að auka lífsgæði og stuðla að valdeflingu
- Móttaka gesta Lækjar
- Aðstoð í eldhúsi
- Heilsuefling, útivist og sköpun
- Heilsuefling gesta
- Sjá um að móta og skapa ný námskeið
- Önnur verkefni skv. starfslýsingu
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Háskólamenntun (B.A/B.S) á viðurkenndu fagsviði sem nýtist í starfi s.s. sálfræði, uppeldisfræði, iðjuþjálfun, félagsráðgjöf tómstunda- og þroskaþjálfafræði.
- Reynsla af störfum og samskiptum með geðfötluðum æskileg
- Áhugi á málaflokknum
- Frumkvæði og jákvæðni í samskiptum og starfi
- Hæfni í mannlegum samskiptum, framtakssemi og samstarfsvilji
- Hugmyndaauðgi
- Áhugi á skapandi starfi er kostur og þekking eða reynsla af leirlist og/eða notkun leirbrennsluofns er sérstaklega vel þegin, en ekki skilyrði
- Geta til að vinna undir álagi og að bregðast við breyttum aðstæðum
- Íslenskukunnátta
Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.
Upplýsingar um starfið veitir Brynja Rut Vilhjálmsdóttir, sími: 664-5746 eða 585-5770, eða í gegnum tölvupóst: [email protected]
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við BHM.
Umsóknarfrestur er til og með 28. október 2026.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.
Icelandic










