

Starfsmaður á heimili fyrir fatlað fólk - Arnarhraun
Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða öflugan starfsmann á búsetukjarna fyrir fatlað fólk, sem staðsettur er miðsvæðis í bænum. Unnið er eftir hugmyndafræði Þjónandi leiðsagnar.
Um er að ræða fjölbreytt og spennandi 60% framtíðarstarf í vaktavinnu.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Veita íbúa stuðning við athafnir daglegs lífs
- Fylgja eftir þjónustuáætlunum og verklagsreglum
- Virkja íbúa til félagslegrar virkni og þátttöku í samfélaginu
- Sinna heimilisstörfum
- Önnur verkefni skv. starfslýsingu
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Reynsla af sambærilegum störfum æskileg
- Áhugi á málefnum fatlaðs fólks
- Íslenskukunnátta skilyrði, A2 tungumálastaðall ETM Sjálfsmatsrammi (coe.int)
- Þjónustulund og jákvæðni í starfi
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði og samviskusemi
- Sjálfstæð vinnubrögð og sveigjanleiki í starfi
- Líkamleg geta til þess að sinna verkefnum á vinnustað
Skilyrði er að viðkomandi hafi náð 20 ára aldri og hafi hreint sakavottorð.
Frekari upplýsingar um starfið veitir Áróra Huld Bjarnadóttir, forstöðumaður í síma: 585-5769, netfang: [email protected]
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðarbæjar.
Umsóknarfrestur 14. október 2026.
Umsókn fylgi greinargóð ferilskrá.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins
Icelandic























