NPA miðstöðin
NPA miðstöðin
NPA miðstöðin

Óska eftir aðstoðarkonu í hlutastarf á föstudögum og afleysingar.

Ég er kona á besta aldri, bý í Kópavogi og er að leita að aðstoðarkonu til starfa í NPA þjónustu. Ég hef gaman af lífinu og er úti um allt að gera alls konar hluti eins og að fara í sund og á menningarviðburði. Ég er í leiklist, sinni fjölbreyttum góðgerðarstörfum og sjálfboðaliðastörfum svo eitthvað sé nefnt.

Ég óska eftir aðstoðarkonu í vaktir á föstudögum.
Vaktirnar eru að jafnaði frá 12:00 - 20:00

Ég er hreyfihömluð og nota hjólastól. Ég er að leita að aðstoðarkonu sem getur aðstoðað mig eftir þörfum í mínu daglega lífi m.a. við útréttingar, heimilisstörf, matreiðslu, sundferðir, og annað sem ég tek mér fyrir hendur. Hlutverk aðstoðarkonu er í stuttu máli að vera mín hægri hönd í verkefnum dagsins.
Athugið. Ég er með kött á heimilinu og þarf aðstoð við að sinna honum.

Ef þú hefur gaman af lífinu, getur tekið leiðsögn og átt auðvelt með mannleg samskipti þá gæti ég verið að leita að þér. Ekki er verra ef þú ert líka traust, skipulögð og samviskusöm.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Kvenkyns
  • 25 ára eða eldri
  • Tóbakslaus
  • Læs og talandi á íslensku
  • Sveigjanleg, áreiðanleg og stundvís
  • Bílpróf
  • Getur sinnt helstu heimilisstörfum og garðvinnu
  • Hreint sakavottorð

Laun eru samkvæmt kjarasamningi NPA miðstöðvarinnar og Eflingar.
Nánar um launakjör aðstoðarfólks hér.

Starfið byggir á hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf en hægt er að lesa nánar um hugmyndafræðina og notendastýrða persónulega aðstoð á vef NPA miðstöðvarinnar www.npa.is.

Advertisement published28. September 2026
Application deadline5. October 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Intermediate
Location
Urðarhvarf 8, 203 Kópavogur
Type of work
Suitable for
Professions
Job Tags