Hæfingarstöðin Dalvegi
Hæfingarstöðin Dalvegi
Hæfingarstöðin Dalvegi

Starfsmaður á hæfingarstöð í Kópavogi

Velferðarsvið Kópavogsbæjar óskar eftir starfsfólki til starfa í dagvinnu á hæfingarstöð fyrir fatlað fólk. Í boði er annars vegar 100% starf og hins vegar 50% starf. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Hæfingarstöðin býður uppá dagþjónustu, virkni- og vinnuþjálfun fyrir fatlaða einstaklinga. Vinnustaðurinn leitar að drífandi og áhugasömu starfsfólki til að takast á við fjölbreytt verkefni í sveigjanlegu og skemmtilegu vinnuumhverfi. Reynsla af starfi með fólki með fötlun er æskileg.

Unnið er í skipulagðri hópavinnu og einstaklingsmiðaðri vinnu. Ýmis þróunarverkefni eru í gangi, til að mynda er vilji til að efla listasmiðju og verkefni tengd smíði, keramik og listsköpun af ýmsu tagi.

Um er að ræða tímabundið starf til eins árs, með möguleika á framlengingu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Að skapa öryggi og vellíðan á vinnustað. 
  • Þátttaka í faglegu starfi, s.s. að leiðbeina, styðja og hvetja notendur við verkefni sem unnið er að hverju sinni.
  • Þátttaka í teymisvinnu.
  • Einstaklingsmiðaður persónulegur stuðningur við fatlað fólk.
  • Að framfylgja þjálfunar-/þjónustuáætlunum sem forstöðumaður, deildarstjórar eða þroskaþjálfar hafa umsjón með
  • Önnur verkefni sem yfirmaður felur starfsmanni og falla undir verksvið viðkomandi.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Umsækjendur þurfa að hafa náð 20 ára aldri.
  • Formlegt próf af styttri námsbrautum, s.s. félagsliðanám eða a.m.k. tveggja ára nám í framhaldsskóla
  • Reynsla og þekking á starfi með fötluðu fólki.
  • Stundvísi og samviskusemi.
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Framtakssemi og jákvæðni í starfi.
  • Gott líkamlegt ástand þar sem starfið getur verið líkamlega krefjandi.
  • Góð íslenskukunnátta.
Fríðindi í starfi

Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frían aðgang að sundlaugum bæjarins.

36 klukkustunda vinnuvika.

Boðið er upp á mat þrisvar á dag, starfsfólki að kostnaðarlausu.

Skemmtilegt starfsumhverfi.

Advertisement published25. September 2026
Application deadline4. October 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Dalvegur 18, 201 Kópavogur
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.AdaptabilityPathCreated with Sketch.HonestyPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.First aidPathCreated with Sketch.PunctualPathCreated with Sketch.Team work
Work environment
Professions
Job Tags