

Sjúkraþjálfari á endurhæfingardeild - Hrafnista Laugarási
Langar þig að taka þátt í að þróa og móta framtíð endurhæfingarþjónustu fyrir eldra fólk? Vilt þú styðja fólk til að viðhalda færni sinni og lífsgæðum sem lengst?
Hrafnista Laugarási leitar að metnaðarfullum sjúkraþjálfara til starfa á nýrri og framsækinni endurhæfingardeild þar sem dagendurhæfing er í örum vexti og gegnir lykilhlutverki í þjónustunni.
Við erum að byggja upp öflugt og samþætt þverfaglegt teymi sem vinnur að því að efla færni, sjálfstæði og lífsgæði einstaklinga. Starfið felur í sér fjölbreytt verkefni bæði með íbúum Hrafnistu og þjónustuþegum dagendurhæfingar, þar sem áhersla er lögð á einstaklingsmiðaða meðferð, virka þátttöku og árangursríka endurhæfingu.
Á deildinni starfa sjúkraþjálfarar, iðjuþjálfar, íþróttafræðingar og aðstoðarfólk í nánu samstarfi. Hér færð þú einstakt tækifæri til að hafa áhrif á þróun þjónustunnar, koma að nýsköpun í starfsumhverfi sem einkennist af fagmennsku, samvinnu og metnaði. Deildin býr yfir nýjum tækjasal og góðri aðstöðu til meðferðar og þjálfunar. Einnig er möguleiki á þátttöku í göngudeildarþjónustu.
Um er að ræða 70-100% starf.
Hjá okkur færð þú:
- Fjölbreytt og krefjandi verkefni
- Tækifæri til að hafa raunveruleg áhrif á mótun og þróun þjónustu
- Sveigjanlegt og hvetjandi starfsumhverfi
- Öflugt þverfaglegt samstarf þar sem fagþekking allra nýtist
- Vettvang til að þróa eigin styrkleika og fagmennsku
- Góða starfsaðstöðu og nýjan tækjasal
- Sterka liðsheild þar sem áhersla er lögð á stuðning, þróun og vellíðan starfsfólks
- Greining, endurhæfing, þjálfunaráætlanir og skráning
- Skipulagning endurhæfingar íbúa og þjónustuþega dagendurhæfingar
- Ráðgjöf og umsóknir á hjálpartækjum
- Fræðsla fyrir þjónustuþega og starfsfólk
- Teymisvinna
- Íslenskt starfsleyfi sem sjúkraþjálfari frá Landlæknisembættinu
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum
- Góð skipulagshæfni
- Faglegur metnaður
- Jákvæðni og frumkvæði í starfi
Icelandic

