
TM
TM leggur ríka áherslu á kynjajafnrétti og jafnréttismál eru meðal forgangsatriða í þróun og framtíðarsýn félagsins. Frá 2014 hefur TM hlotið jafnlaunavottun VR og það var með fyrstu fyrirtækjum til að fá viðurkenningu Jafnréttisvísis Capacent.
Það er TM sérstakt kappsmál að skapa lifandi og kraftmikið starfsumhverfi og vera aðlaðandi vinnustaður fyrir hæfileikaríkt og metnaðarfullt fólk. Aðeins þannig getur félagið þróast og eflst með það að marki að mæta kröfum framtíðarinnar.

Hjúkrunarfræðingur í Áhættumati persónutrygginga
Ert þú hjúkrunarfræðingur sem vilt nýta klíníska þekkingu þína á nýjan hátt?
TM leitar að hjúkrunarfræðingi til starfa í áhættumati persónutrygginga. Við leitum að einstaklingi sem sameinar nákvæmni, góða greiningarhæfni og mannleg samskipti. Starfið hentar sérstaklega vel hjúkrunarfræðingi sem hefur áhuga á að nýta heilbrigðisþekkingu sína á nýjan hátt, utan hefðbundins klínísks starfsumhverfis.
Starfið felur í sér faglegt og sjálfstætt mat á heilsufarsupplýsingum vegna umsókna um persónutryggingar. Við leggjum áherslu á vandað áhættumat og skýra, faglega þjónustu við viðskiptavini og samstarfsaðila. Hér gefst tækifæri til að vinna á sérhæfðu sviði þar sem heilbrigðisþekking, greiningarhæfni og góð þjónusta fara saman.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Móttaka og yfirferð umsókna um persónutryggingar
- Móttaka og úrvinnsla læknabréfa og heilbrigðisvottorða, ásamt mati á heilsufarsgögnum í samræmi við reglur um áhættumat
- Samskipti við umsækjendur, lækna og heilbrigðisstarfsfólk
- Ýmis önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Íslenskt hjúkrunarleyfi
- Reynsla af störfum í heilbrigðiskerfinu
- Góð færni í mati á heilsufarsupplýsingum og áhugi á greiningarvinnu
- Nákvæmni, sjálfstæði og góð skipulagshæfni
- Góð samskiptahæfni og þjónustulund
- Góð íslensku- og enskukunnátta, bæði í ræðu og riti
- Góð almenn tölvukunnátta
Advertisement published30. October 2026
Application deadline15. November 2026
Language skills
IcelandicRequired
EnglishRequired
Location
Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík
Type of work
Skills
ProactivePositivityAmbitionPrecisionConscientious
Work environment
Professions
Job Tags
Other jobs (1)
Similar jobs (12)

Tjónafulltrúi Ökutækjatjóna
TM

Sérfræðingur í forvörnum og öryggismálum fyrirtækja
Vörður tryggingar

Viðskiptastjóri í hjúkrunarvörum og heilbrigðislausnum
STOÐ

Hjúkrunarfræðingur á innrennsliseiningu dagdeildar gigtarsjúkdóma
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur á göngudeild innkirtlasjúkdóma
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur á göngudeild innkirtla og efnaskipta
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur á bráðalegudeild lyndisraskana
Landspítali

Hjúkrunarfræðingar á bráðalyflækningadeild A2 Fossvogi
Landspítali

Aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar á bráðalegudeild lyndisraskana
Landspítali

Hjúkrunarfræðingar á skurðlækningadeild Fossvogi
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur óskast til starfa hjá SÁÁ
SÁÁ

Hjúkrunarfræðingur í heilsuvernd skólabarna
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins