Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Hjúkrunarfræðingur í heilsuvernd skólabarna

Heilsugæslan Seltjarnarnesi og Vesturbæ auglýsir eftir áhugasömum hjúkrunarfræðingi í starf skólahjúkrunar. Um er að ræða 40-100% ótímabundið starf og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf 1. desember eða eftir nánara samkomulagi.

Við leitum að hjúkrunarfræðingi sem hefur áhuga á að starfa með börnum og taka þátt í þróun heilsugæsluhjúkrunar. Hjúkrunarfræðingi sem er tilbúinn að takast á við krefjandi og skemmtileg verkefni á spennandi starfsvettvangi.

Nánari upplýsingar um starfsemina má finna á vef Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins

Helstu verkefni og ábyrgð

Megin starfssvið er skólaheilsugæsla.

Skólahjúkrunarfræðingur sinnir reglubundnu heilbrigðiseftirliti nemenda ásamt fræðslu og forvarnarstarfi. Auk þess sinnir hann öðrum viðfangsefnum sem upp kunna að koma í samstarfi við annað starfsfólk skólans og foreldra eftir þörfum hverju sinni.

Skólahjúkrun er hluti af heilsugæslunni og er markmið heilsuverndar grunnskólabarna að efla heilbrigði þeirra og stuðla að vellíðan. Skólahjúkrunarfræðingur myndi jafnframt koma að þróun starfs tengiliðar skv. Farsældarlögum sem snýr að samhæfingu fyrsta stigs þjónustu við börn og fjölskyldur. Hlutverk tengiliðar er að veita börnum og foreldrum almenna þjónustu í þágu farsældar barna.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Íslenskt hjúkrunarleyfi
  • Þekking og áhugi á forvarnar- og heilsueflingarstarfi
  • Reynsla af skólahjúkrun æskileg

  • Reynsla af fjölskylduhjúkrun kostur

  • Þekking á réttindum barna

  • Sjálfstæði í starfi, skipulagshæfni og öguð vinnubrögð

  • Reynsla og áhugi á teymisvinnu

  • Reynsla af bráða- og slysamóttöku er kostur

  • Mikil samskiptahæfni og sveigjanleiki

  • Íslenskukunnátta og góð almenn tölvukunnátta

Advertisement published27. October 2026
Application deadline10. November 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Location
Suðurströnd 12, 170 Seltjarnarnes
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.NursePathCreated with Sketch.AmbitionPathCreated with Sketch.ConscientiousPathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.FlexibilityPathCreated with Sketch.Team work
Work environment
Professions
Job Tags