Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Teymisstjóri hjúkrunar Droplaugarstöðum

Dropaugarstaðir hjúkrunarheimili óska eftir öflugum hjúkrunarfræðing í stöðu teymisstjóra hjúkrunar.

Droplaugarstaðir er Eden vottað hjúkrunarheimili með áherslu á heimilislegt umhverfi og sjálfsákvörðunarrétt íbúa.

Droplaugarstaðir eru með virkt gæðakerfi og fengu ISO vottun árið 2020 fyrst hjúkrunarheimila á Íslandi. Í stefnu heimilisins eru öryggi, virkni og vellíðan íbúa, starfsfólks og fjölskyldna í öndvegi.

Við leggjum áherslu á metnað í starfi, fagleg vinnubrögð og samvinnu íbúa og starfsfólks.

Íbúar eru 87 á fjórum deildum. Við erum staðsett í hjarta Reykjavíkur og stutt í almenningssamgöngur.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón með og fagleg ábyrgð á hjúkrunarþjónustu á sinni hæð
  • Skipuleggur daglegt starf á sinni hæð
  • Vinnur samkvæmt markmiðum, hugmyndafræði og gæðastefnu heimilisins
  • Ber ábyrgð á og skipuleggur störf annarra starfsmanna. Útdeilir verkefnum í samræmi við hjúkrunarþarfir íbúa og ber ábyrgð á að þeim störfum sé framfylgt
  • Ber ábyrgð á og leysir úr þeim starfsmannamálum sem upp koma hverju sinni. Greinir þörf á þeim starfsmannamálum sem þurfa frekari úrvinnslu og beinir þeim til hjúkrunarstjóra og upplýsir
  • Ber ábyrgð á og metur þörf á stuðningi, fræðslu og upplýsingastreymi til aðstandenda. Sinnir fjölskylduviðtölum og stuðningsviðtölum til aðstandenda eftir þörfum
  • Er til aðstoðar hjúkrunarstjóra í umsjón þeirra mála sem hjúkrunarstjóri felur starfsmanni.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Hjúkrunarfræðingur með íslenskt hjúkrunarleyfi
  • Íslenskukunnátta á stig C2 í samræmi við samevrópskan tungumálaramma
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði í starfi, þolinmæði og jákvætt viðhorf
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.
Fríðindi í starfi
  • Sundkort Reykjavíkurborgar
  • Menningarkort Reykjavíkurborgar
  • Bókasafnskort Reykjavíkurborgar
  • Íþróttastyrkur
  • Samgöngusamningur
Advertisement published26. October 2026
Application deadline8. November 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Snorrabraut 58, 105 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProfessionalismPathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.NursePathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.Team workPathCreated with Sketch.Customer servicePathCreated with Sketch.Patience
Professions
Job Tags