
SÁÁ
SÁÁ er almannasamtök með um sjö þúsund félagsmenn. Samtökin annast rekstur fjögurra meðferðarstofnana þar sem heilbrigðisstarfsmenn veita áfengis- og vímuefnasjúklingum faglega heilbrigðisþjónustu í hæsta gæðaflokki.
Þetta eru sjúkrahúsið Vogur, Vík á Kjalarnesi og göngudeildirnar í Von, Efstaleiti 7 í Reykjavík og Hofsbót 4 á Akureyri.

Hjúkrunarfræðingur óskast til starfa hjá SÁÁ
Við leitum að hjúkrunarfræðingi til starfa á Sjúkrahúsinu Vogi. Um er að ræða vaktavinnu og möguleiki er á hlutastarfi.
Hjá SÁÁ starfar öflugur hópur fagfólks sem sinnir meðferð einstaklinga með áfengis- og vímuefnavanda. Á Sjúkrahúsinu Vogi er veitt sérhæfð heilbrigðisþjónusta þar sem hjúkrunarfræðingar gegna lykilhlutverki í meðferð, stuðningi og umönnun skjólstæðinga.
Starfið er fjölbreytt og krefjandi og felur í sér náið samstarf við aðrar fagstéttir. Við leggjum áherslu á góðan starfsanda, fagmennsku, öryggi skjólstæðinga og stöðuga þróun þjónustunnar.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Hjúkrun skjólstæðinga í fíknimeðferð, þar á meðal fráhvarfsmeðferð.
- Mat á hjúkrunarþörfum, skipulagning og framkvæmd hjúkrunarmeðferðar.
- Lyfjaumsýsla og eftirlit með líkamlegu og andlegu ástandi skjólstæðinga.
- Fræðsla, ráðgjöf og stuðningur við skjólstæðinga.
- Þátttaka í þverfaglegu samstarfi og meðferðaráætlanagerð.
- Þátttaka í faglegri þróun, gæðastarfi og umbótaverkefnum.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Gilt starfsleyfi sem hjúkrunarfræðingur á Íslandi.
- Góð samskipta- og samstarfshæfni.
- Góð íslenskukunnátta í töluðu og rituðu máli.
- Sjálfstæð, skipulögð og fagleg vinnubrögð.
- Áhugi á fíknimeðferð og þverfaglegu samstarfi.
- Starfsreynsla af hjúkrun einstaklinga í fíknimeðferð, geðhjúkrun eða sambærilegri heilbrigðisþjónustu er kostur en ekki skilyrð.
Fríðindi í starfi
- Fjölbreytt og gefandi starf í sérhæfðri heilbrigðisþjónustu.
- Möguleiki á hlutastarfi.
- Öflugt þverfaglegt samstarf og gott samstarfsfólk.
- Tækifæri til faglegrar þróunar, fræðslu og símenntunar.
- Þátttaka í þróun og umbótum á hjúkrunarþjónustu SÁÁ.
Advertisement published28. October 2026
Application deadline11. November 2026
Language skills
EnglishOptional
IcelandicRequired
Location
Stórhöfði 45, 110 Reykjavík
Vík, Kjalarnesi
Efstaleiti 7, 103 Reykjavík
Type of work
Skills
NurseTeam work
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)

Hjúkrunardeildarstjóri dag- og göngudeildar blóð- og krabbameinslækninga
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur í Áhættumati persónutrygginga
TM

Viðskiptastjóri í hjúkrunarvörum og heilbrigðislausnum
STOÐ

Hjúkrunarfræðingur á innrennsliseiningu dagdeildar gigtarsjúkdóma
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur á göngudeild innkirtlasjúkdóma
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur á göngudeild innkirtla og efnaskipta
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur á bráðalegudeild lyndisraskana
Landspítali

Hjúkrunarfræðingar á bráðalyflækningadeild A2 Fossvogi
Landspítali

Aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar á bráðalegudeild lyndisraskana
Landspítali

Hjúkrunarfræðingar á skurðlækningadeild Fossvogi
Landspítali

Sjúkraliðar og sjúkraliðanemar á bráðalyflækningadeild A2 Fossvogi
Landspítali

Sjúkraliði á skurðlækningadeild Fossvogi
Landspítali