

Hjúkrunardeildarstjóri dag- og göngudeildar blóð- og krabbameinslækninga
Við leitum eftir kraftmiklum leiðtoga til að leiða og efla starfsemi dag- og göngudeildar blóð- og krabbameinslækninga á Landspítala. Starfið er unnið í nánu samstarfi við framkvæmdastjóra, forstöðuhjúkrunarfræðing, yfirlækna og aðra stjórnendur og samstarfsfólk.
Á deildinni starfa samhent teymi sem sinna þjónustu við sjúklinga með blóðsjúkdóma og krabbamein. Mikill vöxtur er í nýgreiningum krabbameina og að unnið er að alþjóðlegri vottun þjónustunnar. Hjúkrunardeildarstjóri mun taka virkan þátt í umbótum tengdum þessum verkefnum.
Hjúkrunardeildarstjóri þarf að búa yfir afburða hæfni í samskiptum og stuðla að teymisvinnu innan deildar og við aðra stjórnendur og samstarfsaðila. Hjúkrunardeildarstjóri ber þríþætta ábyrgð þ.e.a.s. faglega ábyrgð, starfsmannaábyrgð og rekstrarábyrgð. Hjúkrunardeildarstjóri er yfirmaður starfsfólks á deildinni sem telur um 30 starfsmenn, stjórnar daglegum rekstri og er leiðandi um fagleg málefni deildarinnar í samstarfi við yfirlækni blóðlækninga og krabbameinslækninga.
Starfshlutfall er 100% og veitist starfið frá 1. janúar 2027 eða eftir samkomulagi. Næsti yfirmaður er forstöðuhjúkrunarfræðingur krabbameinsþjónustu.
Icelandic
















































