

Sérhæfður starfsmaður við krufningar á meinafræðideild
Laust er til umsóknar starf sérhæfðs starfsmanns á meinafræðideild Landspítala frá 1. desember 2026, eða samkvæmt samkomulagi. Starfshlutfall er 100%, eða eftir nánara samkomulagi. Við leitum eftir lausnamiðuðum einstaklingi sem sýnir frumkvæði og er tilbúinn að vinna í krefjandi starfsumhverfi með frábæru starfsfólki.
Á meinafræðideildinni eru starfandi rúmlega 70 einstaklingar, þar á meðal læknar, lífeindafræðingar, náttúrufræðingar, skrifstofumenn og sérhæft starfsfólk. Þar fara meðal annars fram sjúkdómsgreiningar, rannsóknir, ráðgjöf og kennsla heilbrigðisstétta í vefjarannsóknum.
Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er 36 stundir. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
Icelandic
















































