

A4 – Leitar eftir öflugum bókara
A4 óskar eftir að ráða öflugan og metnaðarfullan bókara í 85-100% starf á fjármálasviði. Fyrirtækið býður starfsfólki sínu upp á ýmis hlunnindi og má þar sem dæmi nefna sveigjanlegan vinnutíma, öflugt starfsmannafélag, heilsustyrk, samstarf við vinnuvernd og góðan afslátt á vörum.
Fyrirtækið rekur átta A4 verslanir og Kubbabúðina í Smáralind auk þess að starfsrækja fyrirtækjaþjónustu, heildsölu og húsgögn. Við leggjum metnað í að bjóða gæðavörur og veita góða þjónustu þar sem áhersla er á að hugað sé að umhverfisþáttum og samfélagslegri ábyrgð. Við teljum starfsfólk okkar framúrskarandi sem endurspeglast í ánægðum viðskiptavinum okkar og góðum starfsanda.
Starfssvið:
- Móttaka, skráning og bókun reikninga
- Bókun uppgjöra úr verslunum
- Tollskýrslugerð og afstemmingar við toll
- Afstemming bankareikninga og lánardrottna
- Tilfallandi aðstoð við innkaup
- Önnur tilfallandi verkefni á fjármálasviði
Hæfniskröfur:
- Menntun sem nýtist í starfi, viðurkenndur bókari kostur
- Reynsla af sambærilegu starfi
- Mjög góð þekking og færni í Microsoft Buissnes Central eða sambærilegu kerfi
- Mjög góð færni í excel
- Nákvæmni, talnagleggni og skipulag í vinnubrögðum
- Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
- Jákvæðni og góðir samskiptahæfileikar
- Íslenskukunnátta
Nánari upplýsingar um starfið veitir Helga Guðrún, fjármálastjóri, í síma 580 0000 eða á netfangið [email protected]
Umsóknarfrestur er til og með 16. maí 2025.
Umsókn skal fylgja starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfi viðkomandi í starfið.












