Do you want to translate non-english job information to English?
Rauði krossinn á Íslandi
Rauði krossinn á Íslandi
Rauði krossinn á Íslandi

Sala og skipulagning skyndihjálp

Verkefnafulltrúi í Skyndihjálparteymi

Rauði krossinn á Íslandi óskar eftir jákvæðum og framsýnum einstaklingi í fullt starf sem verkefnafulltrúi í skyndihjálparteymi félagsins. Starfið hentar vel skipulögðum einstaklingi sem hefur ríka þjónustulund og áhuga á að stuðla að öryggi og velferð samfélagsins.

Viðkomandi þarf að geta hafið störf í ágúst 2025. Umsóknarfrestur er til og með 19. maí 2025, en umsóknir verða skoðaðar jafnóðum og geta viðræður við umsækjendur hafist áður en frestur rennur út.

Um starfið

Verkefnafulltrúi skyndihjálparteymis sinnir fjölbreyttum og samfélagslega mikilvægum verkefnum sem tengjast öryggis- og björgunarnámskeiðum Rauða krossins. Í starfinu felst m.a. skipulagning námskeiða, samstarf við leiðbeinendur og stuðningur við fjáröflunar- og kynningarstarf.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Skipuleggja námskeið í öryggi, björgun og almennri skyndihjálp fyrir einstaklinga, fyrirtæki og stofnanir.

  • Halda utan um samstarf við leiðbeinendur.

  • Hafa umsjón með skyndihjálparbúnaði og þróun á verkefnasviði.

  • Taka þátt í gerð markaðs- og viðburðarefnis í samvinnu við fjáröflunar- og kynningarteymi.

  • Styðja við fjáröflunarverkefni og önnur tilfallandi verkefni á sviði skyndihjálpar.

Hæfni og reynsla

  • Ekki er gerð krafa um tiltekna menntun, en reynsla sem nýtist í starfi er mikils metin.

  • Reynsla af sölu, viðburðahaldi, kynningar- og markaðsmálum er kostur.

  • Framúrskarandi skipulagshæfni, jákvæðni og sjálfstæð vinnubrögð.

  • Góð tölvukunnátta er nauðsynleg – reynsla af Salesforce er kostur.

  • Þekking á starfi Rauða krossins er kostur.

Við bjóðum

  • Hvetjandi og samfélagslega meðvitaðan vinnustað.

  • Hreyfimínútur, íþróttastyrk og samgöngustyrk.

  • Tækifæri til að vinna að málefnum sem skipta máli og hafa raunveruleg áhrif.

Umsóknarferli

Umsóknir berast í gegnum Alfreð og skulu innihalda ferilskrá og kynningarbréf. Umsóknarfrestur er til og með 19. maí 2025, en athugið að ráðning getur farið fram áður en frestur rennur út.

Við hvetjum einstaklinga af öllum kynjum og uppruna til að sækja um.

Nánari upplýsingar veitir Hildur Vattnes, teymisstjóri Skyndihálp hildurvk@redcross.is

Advertisement published5. May 2025
Application deadline19. May 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Location
Efstaleiti 9, 103 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Tech-savvyPathCreated with Sketch.FacebookPathCreated with Sketch.Public speakingPathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.Microsoft ExcelPathCreated with Sketch.Microsoft OutlookPathCreated with Sketch.Driver's licencePathCreated with Sketch.SalesforcePathCreated with Sketch.ContractsPathCreated with Sketch.Phone communicationPathCreated with Sketch.Email communicationPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.Definition of target groupsPathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.SalesPathCreated with Sketch.Project managementPathCreated with Sketch.Working under pressurePathCreated with Sketch.Event managementPathCreated with Sketch.Customer service
Work environment
Professions
Job Tags
Would you like some cookies?
We use cookies to analyse web traffic and improve your browsing experience.