Markjálfun í tungumálanámi
Fyrir tungumálakennara á framhaldsskólastigi eða í fullorðinsfræðslu.
Virkjaðu nemendur þína – sem tungumálaþjálfi!
Áhugahvöt – leið til varanlegs náms
Innri hvati einstaklings er grundvöllur náms sem skilar árangri til framtíðar. Sem kennarar getum við undirbúið okkur markvisst, haft góðar fyrirætlanir og verið frumleg í kennslu. En varanlegt nám á sér aðeins stað ef nemendur okkar VILJA virkilega læra og búa yfir innri áhugahvöt.
Hvernig er hægt að hjálpa nemendum í tungumálanámi að virkja þessa áhugahvöt? Ein leið til þess er sem tungumálaþjálfi. Á þessu námskeiði er farið yfir leiðir til að vekja áhuga nemenda þannig að þeir skilji hvers vegna þeir þurfa að læra og glæði viljan til náms. Tungumálaþjálfinn býr til nám MEÐ nemendum, ekki FYRIR þá. Nemandi sem lærir tungumál með leiðsögn tungumálþjálfa upplifir að hann sé séður og að á hann sé hlustað og hann öðlast þannig öryggi til að marka sína eigin leið.
Hvernig fer þetta fram?
Á námskeiðinu fá þátttakendur sjálfir þjálfun í markþjálfun og þannig góða innsýn í gildi markþjálfunar í tungumálanámi. Þeir fá tækifæri til að spreyta sig á markþjálfun og upplifa hvernig er að þiggja markþjálfun. Þátttakendur á námskeiðinu ættu, strax að námi loknu að geta byrjað að markþjálfa sína tungumálanemendur.
Þetta námskeið gefur:
-
Innsýn í nýjustu kenningarnar um nám og hvernig þær geta mótað kennslu
-
Þekkingu og þjálfun í spurningatækni til að innleiða í kennslu
-
Hagnýta reynslu í markþjálfun með leiðsögn
-
Áþreifanleg verkfæri til að innleiða tungumálaþjálfun
-
Leiðir sem nemendur í tungumálanámi geta nýtt sér
Dagskrá námskeiðs:
- 18. - 19. febrúar kl 9.30-16.30 staðkennsla
Dagur 1 - ítarleg kynning á bakgrunni og innihaldi markþjálfunar í tungumálanámi og verklegar æfingar.
Dagur 2 - þátttakendur móta sína leið í því hvernig þeir vilja nýta markþjálfunina og setja upp áætlun fyrir æfingatímabilið sem eftir fylgir.
- 24. mars kl 10:00-14:00 fjarkennsla
Þátttakendur í náminu deila reynslu sinni og fá ný verkfæri og innblástur til að efla nemendur sína enn frekar.
- 28. apríl kl 10.00-14.00 fjarkennsla
Þátttakendur í náminu deila reynslu sinni og fá ný verkfæri og innblástur til að efla nemendur sína enn frekar.
- 2. júní kl 9.30-16.30 staðkennsla
Þátttakendur meta eigin markþjálfun og hvernig aðferðin nýtist þeim best í starfi. Í lok námskeiðsins hefur hver og einn sett upp áætlun um innleiðingu tungumálaþjálfunar í sínu starfi. Þátttakendur hafa aðgang að vel útbúinni verkfærakistu til að nýta í þeirri vinnu.
Tíminn á milli lota er hugsaður til að æfa aðferðina undir handleiðslu.
Aðrar hagnýtar upplýsingar:
Námskeiðið fer fram á ensku. Þú færð aðgang að námsumhverfi Studieskolen á netinu, þar sem er aðgangur að öllu efni af námskeiðinu, ýmis sniðmát og þar er samræðuvettvangur leiðbeinanda og þátttakenda á námskeiðinur.
Hádegismatur og hressing í staðkennslu innifalið í námskeiðsgjaldi.