SÍMEY - Símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar
SÍMEY - Símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar
SÍMEY - Símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar

Menntastoðir

Nám í Menntastoðum samanstendur af almennum bóklegum greinum á 2. þrepi. Námið er ætlað þeim sem stefna á nám við undirbúningsdeildir háskóla, þeim sem vilja ljúka framhaldsskóla eða þeim sem vilja efla hæfni sína í bóklegum greinum. Einnig má meta nám í menntastoðum til eininga í bóklegum greinum iðnnáms. 

Hægt er að taka staka áfanga í Menntastoðum.

 

Fyrirkomulag náms: 

Námið er byggt þannig upp að tveir áfangar eru kenndir í einu í fimm vikur í senn. Hver áfangi hefst með fjarfundi á laugardegi og í kjölfarið fer námið fram á netinu í vendikennslu. Athugið að mikilvægt er að mæta á fyrsta fjarfund svo að námið gangi vel fyrir sig. Allir fyrirlestrar eru teknir upp fyrirfram og aðgengilegir námsmönnum í gegnum netið.

Námsmenn hafa aðgengi að kennara í vinnustofum á mánudögum eða miðvikudögum  milli kl. 17:00 - 20:00 í gegnum netið. Þar geta nemendur fengið aðstoð og leiðsögn við gerð verkefna frá kennara. Þar fyrir utan er nemendum frjálst að nýta sér aðstöðuna í SÍMEY og hafa þar aðgengi að ráðgjöfum og verkefnastjórum.

Námsmat:

Námsárangur er metinn með símati í formi verkefna, ekki eru haldin eiginleg lokapróf í áföngunum.  

 

  • Fög kennd á haustönn 2025 (birt með fyrirvara um breytingar):

    • Upplýsingatækni - Hefst 6. september
    • Hagnýt stærðfræði - Hefst 6. september  Því miður er orðið fullt í hagnýta stærðfræði á haustönn 2025
    • Íslenska - Hefst 13. október
    • Enska - Hefst 4. nóvember

 

Sjá nánar námskeiðslýsingar og hæfniviðmið í námsskrá Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins.

 

Hafið samband við Helenu ([email protected]) eða Jónínu ([email protected]) fyrir frekari upplýsingar um nám í Menntastoðum.

 

Fullt nám hefst í ágúst 2025 en hægt er að sækja um þá áfanga sem ekki eru farnir af stað fram að upphafi þeirra.

Starts
6. Sep 2025
Type
Remote
Share
Send message
Share
Copy URL
Categories