

Raunfærnimat
Raunfærnimat er staðfesting á færni einstaklinga - óháð því hvernig færninnar hefur verið aflað.
Niðurstöður raunfærnimats er í flestum tilfellum hægt að nýta til að stytta nám og í öðrum tilfellum til að sýna fram á færni á vinnumarkaði.
Raunfærnimat er frítt fyrir þau sem hafa ekki lokið formlegu námi (formleg námslok eru t.d. útskrift úr framhaldsskóla).
Þeir sem hafa unnið í tiltekinni starfsgrein í að lágmari þrjú ár og eru 23 ára og eldri geta sótt um raunfærnimat í starfsgreininni.
Raunfærnimat sem er í boði:
- Þjónustugreinarnar; félagsliði, leikskólaliði og stuðningsfulltrúi
- Ferðaþjónusta
- Sjúkraliði
- Matartæknir
- Sjávarútvegur; fisktækni og netagerð
- Verslunarfulltrúi
Greinar í samstarfi við Visku - fræðslu- og símenntunarmiðstöð Vestmannaeyja.
- Skipstjórn
Greinar í samstarfi við Iðuna Fræðslusetur:
- Bílgreinar: Bifvélavirkjun, bílamálun, bifreiðasmíði.
- Bygginga- og mannvirkjagreinar: Húsasmíði, málaraiðn, múraraiðn, pípulagnir, skrúðgarðyrkja og veggfóðrun- og dúkalögn.
- Matvæla- og veitingagreinar: Bakaraiðn, framreiðsla, kjötiðn, matreiðsla, matsveinn og matartækni.
- Málm- og véltæknigreinar: Blikksmíði,vélstjórn, rennismíði, stálsmíði, vélvirkjun og veiðarfæratækni.
- Prent- og miðlunargreinar: Grafísk miðlun, prentiðn, ljósmyndun.
- Hársnyrtiiðn.
Hafðu samband og kannaðu þína möguleika á raunfærnimati.
Frekari upplýsingar veitir Jónína verkefnastjóri hjá SÍMEY ([email protected]) og/eða Helena náms- og starfsráðgjafi hjá SÍMEY.
Skráning í raunfærnimat fer fram hér:
Raunfærnimat | Símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar - SÍMEY (simey.is)