SÍMEY - Símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar
SÍMEY - Símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar
SÍMEY - Símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar

Íslenska 3 (A2-1)

Þetta námskeið er ætlað þeim sem lokið hafa Íslenska A1-2 eða sambærilegu námskeiði. 

Á námskeiðinu bætir þú við hæfni þína í að nota íslensku í samtölum og rituðu máli.  

Til dæmis þegar þú: 

  • segir frá þér, áhugamálum, fjölskyldu og fleiru
  • átt samtal um hluti tengda vinnu og heilsu
  • talar í síma um einfalda hluti
  • átt í einföldum tölvupóstsamskiptum 

 Lögð verður áhersla á að efla samtalshæfni enn frekar. Um leið verður aukin áhersla lögð á ritun einfaldra texta og leit að upplýsingum í rituðum texta og fréttum.  Þú lærir að fylgja einföldum leiðbeiningum t.d. leiðarlýsingum og leiðbeiningum varðandi vinnu.  

Aðaláherslan er á að þjálfa færni í að takast á við dagleg verkefni og samskipti á íslensku.

Málfræði 

Þú munt læra málfræði í litlum skrefum, samhliða aukinni færni í tungumálinu.

Tækni 

Í náminu nýtir þú þér snjallsíma, internetið og ýmis öpp til að gera námið fjölbreyttara.   Þriggja mánaða aðgangur að Bara tala appinu fylgir námskeiðinu.

 
Tungumálamarkþjálfun
Við bjóðum þér líka upp á fría tungumála markþjálfun á meðan náminu stendur. Hér getur þú bókað tíma.
Starts
29. Jan 2025
Type
On site
Timespan
20 times
Share
Send message
Share
Copy URL
Categories