Iðan fræðslusetur
Iðan fræðslusetur
Iðan fræðslusetur

HACCP 3 - Uppsetning, innleiðing og stjórnun HACCP

Frá áhættugreiningu til virks kerfis. Ítarlegt sérfræðinámskeið fyrir þá sem bera meginábyrgð á matvælaöryggi.

Fyrir hverja:

Námskeiðið er ætlað stjórnendum, ábyrgðaraðilum og þeim sem bera ábyrgð á uppsetningu, viðhaldi og endurskoðun HACCP-kerfa. Það hentar eigendum, rekstrarstjórum, gæðastjórum og framleiðslustjórum í fyrirtækjum sem meðhöndla matvæli.

Markmið:

Að veita þátttakendum þá þekkingu og verkfæri sem þarf til að hanna, innleiða og stýra HACCP-kerfi í heild sinni. Áhersla er lögð á sjálfstæða hættugreiningu, skilgreiningu CCP-staða, vöktun, skráningar og stöðuga eftirfylgni í samræmi við lög og kröfur eftirlitsaðila.

Á námskeiðinu verður fjallað um:

  • Grunnstoðir HACCP og tengsl við lög og opinbert eftirlit
  • Ferlagreiningu og heildstæða hættugreiningu
  • Skilgreiningu CCP-staða, viðmiðunarmörk og vöktun
  • Skráningar, sannprófanir og innri úttektir
  • Innleiðingu HACCP í daglegan rekstur, ábyrgð stjórnenda og stöðugar umbætur

Að loknu námskeiði á nemandi að:

  • Geta hannað og sett upp HACCP-kerfi frá grunni
  • Framkvæmt hættugreiningu og skilgreint CCP-staði
  • Unnið með vöktun, skráningar og úrbætur
  • Haldið utan um sannprófanir og endurskoðun kerfa
  • Sinnt samskiptum við eftirlitsaðila af fagmennsku
  • Tryggt að HACCP-kerfið sé virkur hluti af daglegum rekstri
Starts
21. Apr 2026
Type
On site / remote
Share
Send message
Share
Copy URL
Categories