
Iðan fræðslusetur

Rennismíði og fræsing
Lærðu að vinna með nákvæmni – grunnur í notkun rennibekkja og fræsivéla.
Fyrir hverja:
Námskeiðið er fyrir einstaklinga sem vilja læra grunnatriði í notkun hefðbundins vinnslubúnaðar eins og rennibekkja og fræsivéla – grunnnámskeið sem hentar bæði fyrir áhugafólk og þá sem vilja auka verklega færni sína við vinnslu málmhluta.
Markmið:
Að þátttakendur öðlist færni í notkun rennibekkja og fræsivéla, tileinki sér góð vinnubrögð og þekki helstu öryggisatriði í tengslum við rennismíði og fræsivinnu.
Á námskeiðinu verður fjallað um:
- Notkun á rennibekk og fræsivél
- Grunnstillingar og nákvæmni í mælingum
- Efnisval og verklag við vinnslu
- Notkun mælitækja og verkfæra
- Öryggisatriði í vélvinnslu
- Verklegar æfingar á vélum
Að loknu námskeiði á nemandi að:
- Geta sett upp og notað rennibekk og fræsivél við grunnverkefni
- Skilja undirstöðuatriði um efnisvinnslu og nákvæmni
- Þekkja helstu öryggisreglur og vinnuferla
- Geta nýtt þekkinguna í almennum vinnsluaðgerðum
Aðrar upplýsingar:
Engin forkunnátta er nauðsynleg. Kennslan fer fram í vel útbúinni vélaverkstæðisaðstöðu. Nemendur þurfa að mæta í vinnufatnaði. Allur búnaður er til staðar.
Starts
4. May 2026Type
On siteShare
Send message
Share
Copy URL
Categories
More from Iðan fræðslusetur
Autodesk Inventor fyrir blikk- og stálsmiði
Iðan fræðsluseturOn site29. Apr
Hjólastilling, endurnýjun réttinda
Iðan fræðsluseturOn site24. Apr
Umbrot og framleiðsla í InDesign
Iðan fræðsluseturOn site05. May
Tölvulæsi
Iðan fræðsluseturOn site28. Apr
Merking vinnusvæða
Iðan fræðsluseturOn site27. Apr
Eldvarnarfulltrúar - skyldur og verkefni
Iðan fræðsluseturOn site29. Apr