Iðan fræðslusetur
Iðan fræðslusetur
Iðan fræðslusetur

Hjólastilling, endurnýjun réttinda

Þarftu að endurnýja heimild til útgáfu hjólastöðuvottorða?

Fyrir hverja: 

Námskeiðið er fyrir fólk sem hefur verið á lista samgöngustofu yfir mælingamenn sem hafa heimild til útgáfu hjólastöðuvottorða.

Markmið: 

Gera þátttakenda kleift að endurnýja réttindi sín þegar kemur að útgáfu hjólastöðuvottorða en slíkt þarf að gera á 5 ára fresti og miðla til þeirra upplýsingum frá Samgöngustofu og um tækninýungar í greininni.

Lýsing: 

Byrjað er að kynna þær breytingar sem orðið hafa á reglugerðum eða ferli í tengslum við útgáfu hjólastöðuvottorða að hálfu Samgöngustofu. Farið verður einnig yfir umsóknaferlið ásamt því að skoðaðar verða helstu tækninýungar í tengslum við hjólastillingar og mikilvægi þess að réttum ferlum sé fylgt.

Á námskeiðinu verður fjallað um:

  • Þær breytingar sem hefur orðið á ferli sem þarf að fylgja til að öðlast réttindi til að gefa út hjólastöðuvottorð.
  • Þær breitingar á reglugerðum sem tengjast útgáfu hjólastöðuvottorða frá upplýsingum samgöngustofu.
  • Tækninýungar sem tengjast hjólabúnaði bifreiða.

Að loknu námskeiði á nemandi að:

  • Hafa þekkingu á þeim reglum og skildum sem tengjast útgáfu hjólastöðuvottorða.
  • Vera meðvitaður um þær tækninýungar sem tengjast hjólabúnaði bifreiða.

Aðrar upplýsingar:

Gerðar eru verklegar æfingar, ýmist á námskeiðinu sjálfu eða úti á vinnustað þátttakenda ef þörf er á.

 

Til þess að fá réttindi verður aðili að hafa sveinspróf í bifvélavirkjun eða bifreiðasmíði. Mælingarmaður verður að sækja um úttekt á starfsstöð að námskeiði loknu í gegnum idan.is. Frekari upplýsingar má finna á vef Samgöngustofu

Starts
24. Apr 2026
Type
On site
Share
Send message
Share
Copy URL
Categories