

Umbrot og framleiðsla í InDesign
Fyrir hverja:
Námskeiðið er ætlað þeim sem vilja efla færni sína í InDesign og vilja vinna markvisst og faglega að framleiðslu fréttabréfa, tímarita og dagblaða.
Markmið:
Markmið námskeiðsins er að veita þátttakendum góða þekkingu á umbroti og framleiðsluferli fréttabréfa, dagblaða og tímarita í Adobe InDesign. Áhersla er lögð á góða uppsetningu, skilvirk vinnubrögð og faglegan frágang efnis fyrir prent og stafræna miðla. Þátttakendur læra að nýta helstu verkfæri forritsins á markvissan hátt og tileinka sér verklag sem notað er í faglegu umbroti þar sem miklu máli skiptir að huga að kostnaði og nýta tímann vel.
Á námskeiðinu verður fjallað um:
Á námskeiðinu verður farið í helstu þætti framleiðslu og umbrots í Indesign.
- Framleiðsluferlið, tíma- og verkáætlanir
- Uppsetningarreglur og almennar verkreglur
- Textavinnslu og leturmeðferð
- Notkun stíla og skipulag efnis
- Mynda- og síðuuppsetningu
- Litastillingar og undirbúning fyrir prent
- Prentstillingar og útflutning (PDF o.fl.)
- Góð ráð í framleiðsluferlinu sem flýta fyrir vinnu og auka gæði.
- Samskipti við verkkaupa
Að loknu námskeiði á nemandi að:
- Hafa skilning á öllu framleiðsluferlinu frá hugmynd að fullunnu verki
- Geta sett upp og brotið um einfalt til meðalflókið efni í Adobe InDesign
- Geta unnið með texta, myndir og stíla á skilvirkan og faglegan hátt
- Geta undirbúið efni fyrir prent og stafræna birtingu
- Þekkja helstu vinnubrögð sem stuðla að betri gæðum og tímasparnaði
- Geta átt fagleg samskipti við verkkaupa og unnið eftir verkáætlun
Aðrar upplýsingar:
Kennari námskeiðsins. Sæmundur Freyr Árnason, er þrautreyndur í umbroti dagblaða, tímarita og fréttabréfa og starfaði sem framleiðslustjóri Fréttablaðsins í fjölda ára.