

Tölvulæsi
Námskeiðið er fyrir þau:
- Sem vilja skilja tæknina sem þau nota daglega.
- Sem vilja nýta gervigreind en finna að grunnurinn í tölvunotkun vantar.
- Sem hafa áhuga á gervigreind en þurfa fyrst betri undirstöðu til að geta nýtt hana á skilvirkan hátt.
Lýsing:
Námskeiðið miðar að því að byggja upp eða styrkja grunn í almennri tölvunotkun. Unnið er í vafra, farið yfir skjala- og möppuskipulag, leitað að skjölum og forritum og skoðað hvernig gervigreind getur nýst sem einfalt og hagnýtt verkfæri í daglegu lífi.
Lögð er áhersla á að hjálpa þátttakendum að skilja og þjálfa atriði sem oft reynast hindrun í daglegri tölvunotkun – sérstaklega í ljósi þess að margir vilja nú læra á gervigreind eða að minnsta kosti skilja hvað hún er og hvernig hún virkar.
Námskeiðið gerir ekki ráð fyrir fyrri þekkingu og markmið þess er að auka öryggi og sjálfstraust í tölvunotkun.
Aðrar upplýsingar:
Námskeiðið er kennt í staðarnámi í Opna háskólanum í HR.
Kennarar eru Steinunn Gróa Sigurðardóttir forstöðukona grunnnáms tölvunarfræðideildar HR og Anna Sigríður Islind prófessor við tölvunarfræðideild Háskólans í Reykjavík.
Vinsamlega athugið að dagsetningar eru birtar með fyrirvara um að lágmarksþátttaka náist á námskeiðið