Iðan fræðslusetur
Iðan fræðslusetur
Iðan fræðslusetur

Eldvarnarfulltrúar - skyldur og verkefni

Námskeið fyrir þau sem ætla að taka að sér starf eldvarnarfulltrúa í fyrirtækjum og stofnunum.

Fyrir hverja:

Þetta námskeið er fyrir öll sem ætla að taka að sér að gerast eldvarnarfulltrúar á sínum vinnustað.

Markmið:

Markmið námskeiðsins er að gera þátttakendum grein fyrir ábyrgð eldvarnarfulltrúa og hvaða skyldur þeir hafa.

Á námskeiðinu verður fjallað um:

  • Lög og reglugerðir er varða viðfangsefnið.
  • Hlutverk hvers aðila sem koma að brunavörnum bygginga, bæði innan og utan fyrirtækja og hvernig þessir aðilar tengjast eldvarnarfulltrúanum.
  • Gerð þjónustusamninga og  verkefni viðurkenndra þjónustuaðila.
  • Mikilvægi viðbragðsáætlana og hvernig skrásetningu brunavarna er almennt háttað.
  • Mikilvægi samþykktra aðaluppdrátta.
  • Utanumhald, skráningu, rekstur og hvernig þessi mál snerta gæðakerfi fyrirtækja

Að loknu námskeiði á nemandi að:

  • Vita hverjar skyldur og ábyrgð eldvarnarfulltrúa eru.
  • Þekkja lög og reglugerðir varðandi eldvarnarfulltrúa.
  • Geta gert þjónustusamninga við þjónustuaðila.
  • Þekkja mikilvægi viðbragðsáætana.

Annað:

Þetta námskeið er haldið í samvinnu við Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Eldvarnarfulltrúi annast daglegar skyldur eiganda er varða brunavarnir bygginga. Eldvarnarfulltrúar geta ýmist verið eigendur bygginga, forráðamenn, starfsmenn þeirra eða  verktakar sem annast þessar skyldur.  Eigandi mannvirkis ber ábyrgð á að það fullnægi kröfum um brunavarnir sem fram eru settar í lögum og reglugerðum og að brunavarnir taki mið af þeirri starfsemi sem fer fram í mannvirkinu eða á lóð þess á hverjum tíma. Það er alltaf þörf á eldvarnarfulltrúa og ef eigandi eða forráðamaður skipa ekki eldvarnafulltrúa eru þeir sjálfkrafa eldvarnarfulltrúar í þeim skilningi að þeir þurfa sjálfir að annast allar daglegar skyldur er varða brunavarnir.

Starts
29. Apr 2026
Type
On site
Share
Send message
Share
Copy URL
Categories