

Tequila & Mezcal Masterclass
Markmið:
Markmið námskeiðsins er að veita þátttakendum hagnýtan skilning á tequila og mezcal – allt frá agave-plöntunni og framleiðsluaðferðum til uppruna, menningar og bragðs.
Með leiðsagðri samanburðarsmökkun þjálfast þátttakendur í að greina og lýsa ólíkum tegundum og stílum tequila og mezcal, skilja hvaða þættir móta karakter þeirra og nýta þekkinguna við kynningu og ráðleggingar til gesta.
Á námskeiðinu verður fjallað um:
- Agave-plöntuna og sérstöðu hennar sem hráefnis
- Grunnatriði í framleiðslu tequila og mezcal
- Sögu og menningarlegt mikilvægi agave-drykkja
- Helstu flokka og stíla tequila
- Mezcal, ólíkar agave-tegundir og hefðbundnar framleiðsluaðferðir
- Áhrif landafræði, uppruna og terroir á bragð og karakter
- Leiðsagða samanburðarsmökkun á tequila og mezcal
- Að greina og lýsa helstu einkennum í ilmi, bragði og karakter
- Mexíkóska menningu og hefðir og þróun agave-drykkja á alþjóðlegum markaði
- Hvernig nýta má þekkingu á tequila og mezcal við ráðleggingar og þjónustu við gesti
Að loknu námskeiði á nemandi að:
- Útskýrt sérstöðu agave sem hráefnis til framleiðslu sterkra drykkja
- Útskýrt helstu skref í framleiðslu tequila og mezcal
- Greint helstu flokka og stíla tequila
- Lýst helstu muninum á tequila og mezcal
- Útskýrt hvernig agave-tegundir, landafræði og framleiðsluaðferðir hafa áhrif á bragð og karakter
- Metið og lýst helstu einkennum í ilmi, bragði og karakter
- Útskýrt menningarlegt mikilvægi og hefðir sem tengjast tequila og mezcal
- Borið saman ólíka stíla tequila og mezcal með markvissri smökkun
- Mælt með tequila og mezcal út frá smekk og óskum gesta
Aðrar upplýsingar:
Leiðbeinandi á námskeiðinu er Jacek Rudecki. Jacek er sérfræðingur í viskíi og sterkum drykkjum með víðtæka reynslu úr drykkja- og veitingageiranum. Hann býr yfir öflugri alþjóðlegri fagmenntun og sérhæfingu á sviði viskís, sterkra drykkja og eimingar, meðal annars WSET Level 3 Award in Spirits, Certified Scotch Professional, General Certificate in Distilling og EBS Instructor Academy.
Hann er stofnandi Áfengisstofnunar, sjálfstæðs fræðslufyrirtækis sem sérhæfir sig í smökkunum, fagþjálfun og fræðslu um viskí og aðra sterka drykki.
Jacek hefur fjölbreytta starfsreynslu úr drykkja- og veitingageiranum, meðal annars við barstjórnun, eimingu, fræðslu og þjónustu.