Iðan fræðslusetur
Iðan fræðslusetur
Iðan fræðslusetur

Tilraunaeldhúsið - Nútíma matargerðalist

Lærðu að nýta vísindalega nálgun til að skapa einstaka matarupplifun. Á þessu verklega námskeiði vinna þátttakendur með nýjustu tækni og hráefni nútímamatreiðslu og læra að þróa nýja áferð, bæta stöðugleika og efla sköpun í faglegu eldhúsi.

Fyrir hvern:

Þetta námskeið er ætlað matreiðslumönnum og öðru fagfólki í matvælageiranum sem vill dýpka þekkingu sína á efnafræðilegum hjálparefnum í nútíma matreiðslu, og hagnýtingu virkra matvælaefna.

Markmið :

Markmið námskeiðsins er að veita þátttakendum traustan skilning á nútíma matreiðsluaðferðum og virkni sérhæfðra hjálparefna. Að námskeiði loknu hafa þátttakendur aukið öryggi og skilning á notkun efnafræði í matreiðslu og geta beitt nútímatækni markvisst til að þróa nýjar uppskriftir og bæta gæði rétta.

  • Að skilja vísindin á bak við nútíma matreiðslutækni
  • Hýdrókolloid og áferðarefni
  • Gel, emulsionsefni, froða og espuma
  • Áferðarhönnun og skynjun
  • Val á innihaldsefnum
  • Hagnýt notkun á nútímatækni
  • Sköpunargáfa, samræmi og þróun matseðla

Lýsing:

Á þessu hagnýta námskeiði er farið yfir hvernig vísindi og matargerð vinna saman til að skapa nýjar upplifanir. Þátttakendur kynnast virkni algengustu hjálparefna sem notuð eru í nútíma matargerð, meðal annars hleypiefnum, ýruefnum, froðum, geli og kúlun (spherification).

Áhersla er lögð á að skilja af hverju ákveðin efni eru notuð, hvenær þau henta best og hvernig þau eru nýtt á réttan hátt. Kennslan byggir á blöndu af fræðslu og verklegum æfingum þar sem þátttakendur prófa tæknina sjálfir og læra að þróa og bæta uppskriftir með markvissri nálgun.

Additional Information:

Leiðbeinandi á námskeiðinu er Camilo Medina

Camilo Medina er matreiðslumaður frá Úrúgvæ sem sérhæft hefur sig í efnafræði matargerðar, matvælavísindum og nýtingu nútíma hjálparefna í matreiðslu. Hann er með meistaragráðu í efnafræði matreiðslu „Molecular gastronomy“ frá Basque Culinary Center og hefur starfað með heimsþekktum matreiðslumeisturum á borð við Martín Berasategui en hann er sá spænski matreiðslumaður sem hlotið hefur flestar Michelin-stjörnur eða alls 12 á ferlinum og Romain Fornell sem hlaut sína fyrstu Michelin-stjörnu aðeins 24 ára gamall og varð þá yngsti franski matreiðslumaðurinn til að hljóta Michelin-stjörnu á þeim tíma. Camilo hefur brennandi áhuga á að deila þekkingu sinni á vísindunum á bak við nútíma matargerð og hjálpa öðrum matreiðslumönnum að þróa sköpunargáfu, sjálfstraust og dýpri skilning á hagnýtum efnum og nútímalegum aðferðum.

 

Tungumál: Enska

Snið: Aðallega verkleg þjálfun

Lengd námskeiðs: Tvö síðdegi (6 klukkustundir hvorn dag)

Hefst
11. nóv. 2026
Tegund
Staðnám
Tímalengd
2 skipti
Deila
Senda í Messenger
Deila með öðrum
Afrita hlekk
Flokkar