
Iðan fræðslusetur

Áhættumat
Lærðu hvernig á að framkvæma markvisst og lögbundið áhættumat á vinnustað samkvæmt vinnuverndarlöggjöf.
Fyrir hverja:
Námskeiðið er ætlað atvinnurekendum, stjórnendum, verkstjórum, öryggistrúnaðarmönnum, starfsmönnum mannauðs- og gæðamála sem og öðrum sem koma að skipulagi, framkvæmd eða eftirliti með vinnuvernd á vinnustöðum.
Markmið:
Markmið námskeiðsins er að þátttakendur öðlist skýran skilning á lagalegri skyldu vinnustaða til að framkvæma áhættumat og læri einfalt, hagnýtt verklag við gerð þess.
Á námskeiðinu verður fjallað um:
- Hvað vinnuverndarlög og reglugerðir segja um áhættumat á vinnustöðum
- Hvaða vinnustaðir eru skyldugir til að gera áhættumat og hver ber ábyrgð á framkvæmd þess
- Uppbyggingu áhættumats og hugmyndafræði þess
- Aðferðina Sex skref við gerð áhættumats
- Notkun gátlista og eyðublaða frá Vinnueftirlitinu
- Greiningu á hættu í vinnuumhverfi með raunhæfum dæmum
- Verkfæri og eyðublöð sem nýtast við gerð og viðhald áhættumats
- Möguleika þátttakenda á eftirfylgni og ráðgjöf eftir námskeið
Að loknu námskeiði á nemandi að:
- Þekkja lagaskyldu vinnustaða varðandi áhættumat
- Geta greint helstu hættur í eigin vinnuumhverfi
- Beitt aðferðinni sex skref við gerð áhættumats
- Geta nýtt gátlista og eyðublöð Vinnueftirlitsins við gerð áhættumats
- Vera í stakk búinn til að framkvæma áhættumat á eigin vinnustað
- Skilja ábyrgð stjórnenda og starfsmanna í áhættumatsferlinu
Aðrar upplýsingar:
Fjarnámskeið með föstum tímum, kennt í gegnum Google Meet. Kennslan byggir á fyrirlestrum, verkefnum og myndrænum dæmum úr raunverulegu vinnuumhverfi.
Hefst
9. nóv. 2026Tegund
FjarnámTímalengd
1 skiptiDeila
Senda í Messenger
Deila með öðrum
Afrita hlekk
Flokkar
Meira frá Iðan fræðslusetur
CE merkingar byggingarvara
Iðan fræðslusetur10. nóv.
Endurmenntun bílstjóra - Vistakstur og öryggi
Iðan fræðslusetur07. nóv.
3D skönnun og endurgerð hluta
Iðan fræðsluseturStaðnám09. nóv.
Eldsmíði
Iðan fræðsluseturStaðnám06. nóv.
Skyndihjálp á verkstað
Iðan fræðsluseturStaðnám04. nóv.
Vaktstjóranámskeið - leiðtogahæfni og samskipti
Iðan fræðsluseturStaðnám04. nóv.
Grunnnámskeið í blómaskreytingum
Iðan fræðsluseturStaðnám05. nóv.