
Iðan fræðslusetur

3D skönnun og endurgerð hluta
Lærðu að skanna raunverulega hluti, umbreyta þeim í nákvæm þrívíddarlíkön og endurgera eða hanna íhluti út frá þeim.
Fyrir hverja:
Námskeiðið er ætlað iðnaðarmönnum, hönnuðum, tæknifólki, viðhaldsaðilum, nemendum og öðrum sem vilja nýta 3D skönnun til að endurgera, breyta eða hanna íhluti fyrir framleiðslu, viðgerðir eða þrívíddarprentun.
Markmið:
Markmið námskeiðsins er að þátttakendur öðlist skilning á helstu aðferðum við 3D skönnun og geti undirbúið hluti fyrir skönnun, unnið úr skanngögnum og endurskapað eða hannað íhluti út frá þeim.
Á námskeiðinu verður fjallað um:
- Helstu aðferðir við 3D skönnun, meðal annars leysiskönnun, structured light og photogrammetry.
- Styrkleika og takmarkanir mismunandi skannaðferða og val á aðferð eftir verkefnum.
- Undirbúning hluta fyrir skönnun og þá þætti sem hafa áhrif á nákvæmni niðurstaðna.
- Algeng mistök við undirbúning og framkvæmd 3D skönnunar.
- Skönnun raunverulegra hluta með 3D skanna.
- Photogrammetry með snjallsíma, t.d. með Polycam.
- Notkun skrifstofuskanna til að mæla og staðsetja einfaldari flata hluti.
- Gerð þrívíddarlíkans út frá 2–3 ljósmyndum og mælingum með skíðmáli, án hefðbundins 3D skanna.
- Úrvinnslu skanngagna og áframhaldandi vinnu með þau í CAD-hugbúnaði.
- Greiningu hluta í einföld grunnform (primitives) og endurteikningu þeirra í Onshape eða Fusion.
- Hönnun nýs íhlutar sem passar við skannaðan hlut, þrívíddarprentun hans og sannprófun á passun.
- Muninn á Fusion og Blender og hvenær hvort forrit hentar, meðal annars fyrir nákvæma vélhönnun og frjálsa líkanagerð.
Að loknu námskeiði á nemandi að:
- Þekkja helstu aðferðir við 3D skönnun og útskýra helstu kosti þeirra og takmarkanir.
- Velja skannaðferð sem hentar viðfangsefni hverju sinni.
- Undirbúa hlut fyrir skönnun með tilliti til nákvæmni og gæða skanngagna.
- Framkvæma einfalda 3D skönnun og vinna úr skanngögnum.
- Búa til þrívíddarlíkan út frá ljósmyndum og mælingum.
- Greina skannaðan hlut niður í grunnform og endurteikna hann í CAD-hugbúnaði.
- Hanna íhlut sem passar við skannaðan eða endurgerðan hlut.
- Prenta út hannaðan íhlut og sannreyna passun hans.
- Greina á milli notkunarmöguleika Fusion og Blender og velja hugbúnað eftir eðli verkefnis.
Aðrar upplýsingar:
Engar sérstakar forkröfur eru gerðar, en grunnþekking á tölvunotkun og áhugi á hönnun eða þrívíddartækni er kostur.
Allur nauðsynlegur búnaður, 3D skannar og hugbúnaður eru til staðar á námskeiðinu. Þátttakendur vinna verkleg verkefni og fá tækifæri til að skanna hluti, vinna úr gögnum og prófa eigin hönnun með þrívíddarprentun.
Hefst
9. nóv. 2026Tegund
StaðnámTímalengd
3 skiptiDeila
Senda í Messenger
Deila með öðrum
Afrita hlekk
Flokkar
Meira frá Iðan fræðslusetur
Endurmenntun bílstjóra - Vistakstur og öryggi
Iðan fræðslusetur07. nóv.
Eldsmíði
Iðan fræðsluseturStaðnám06. nóv.
Skyndihjálp á verkstað
Iðan fræðsluseturStaðnám04. nóv.
Vaktstjóranámskeið - leiðtogahæfni og samskipti
Iðan fræðsluseturStaðnám04. nóv.
Grunnnámskeið í blómaskreytingum
Iðan fræðsluseturStaðnám05. nóv.
Innri úttektir
Iðan fræðsluseturStaðnám03. nóv.
HACCP 1 – Hreinlæti og örugg meðferð matvæla
Iðan fræðsluseturStaðnám03. nóv.
Málningaruppleysir
Iðan fræðsluseturStaðnám04. nóv.
Ofnæmi, óþol og sérfæði í faglegri matargerð
Iðan fræðsluseturStaðnám03. nóv.