Skapandi íslenska (B1) - tjáning og menning
Kynntu þér íslenska menningu og samfélag á námskeiðinu Skapandi íslenska (B1) og upplifðu Ísland á nýjan og skapandi hátt.
Ef þú hefur lokið stigi A2 (stig 4) í íslensku og vilt auka skilning þinn á lífandi menningu og samfélagi Íslands er þetta námskeið fyrir þig!
Ímyndaðu þér að rata auðveldlega um íslenskt samfélag, geta talað við heimamenn og upplifað ríka menningu landsins á fjölbreyttan hátt. Þetta námskeið snýst ekki bara um að læra tungumálið heldur ekki síst að verða hluti af samfélaginu.
Af hverju Skapandi íslenska?
Hagnýt tungumálafærni er öllum nauðsynleg sama hvar þeir búa og er aðaláhersla námskeiðsins. Markmið okkar er að gera þér kleift að eiga samskipti á íslensku og taka þátt í íslensku samfélagi; hvort sem það er að ræða daginn og veginn eða sækja þá þjónustu og stuðning sem samfélagið býður uppá.
Á námskeiðinu verður einnig framleidd stuttmynd um íslenska menningu og samfélag þar sem þú nýtir tungumálakunnáttu þína í skapandi verkefni.
Hvað bíður þín?
Skapandi íslenska (B1) samanstendur af fjórum námsgreinum:
- Íslenskt mál (30 klst.): Eflum tungumálakunnáttu með því að kafa dýpra í íslenska málfræði og flóknari orðaforða.
- Menning og samfélag (24 klst.): Kynnum okkur siði, sögu og samfélagsuppbyggingu sem heldur íslensku samfélagi saman.
- Upplýsingartækni (12 klst.): Kynnum okkur hjálpartæki í tungumálanámi og tæknilega þætti í stuttmyndagerð.
- Sjálfsefling og samskipti (12 klst.): Eflum sjálfstraust og samskiptahæfni með skapandi stuttmyndagerð þar sem þú beitir tungumálakunnáttu þinni í hagnýtum aðstæðum.
Nánari upplýsingar:
Námskeiðið verður kennt á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 17:10-19:20 og einnig á laugardögum kl. 9:00-13:30
Styrkur
Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?