

Mátturinn í næringunni
Markmið námskeiðsins er m.a. að nemandi
kynni sér hvað heilbrigður lífsstíll er og af hverju við ættum að fjárfesta í heilsunni
þekki mátt matarins í bættri heilsueflingu og mikilvægi þess að temja sér góðar venjur
geti fundið leiðir að sykurminni lífsstíl, þekki hvaða áhrif koffín getur haft á svefn og skilji hvað fæðubótarefni eru og hvort við þurfum á þeim að halda
Hvernig getum við valið betur þegar kemur að matarinnkaupum?
Fyrir hverja?
Fyrir alla sem vilja lifa heilsusamlegra lífi og vilja fá fræðslu og stuðning til að geta það.
Námskaflar og tími:
- Kynning - 1 mínúta
- Fjárfestum í heilsunni - 4 mínútur
- Ofneyslusamfélag - 9 mínútur
- Temjum okkur góðar venjur - 7 mínútur
- Sykurinn - 5 mínútur
- Koffín og svefn - 3 mínútur
- Matarinnkaupin - 3 mínútur
- Bætiefni - 2 mínútur
- Algengar mýtur - 6 mínútur
- Gerðu þetta fyrir þig - 3 mínútur
43 mínútur
Textun í boði:
Enska, íslenska, pólska og víetnamska
Leiðbeinandi:
Elísa Viðarsdóttir
Elísa Viðarsdóttir hefur mikla menntun og reynslu á sviði næringar. Hún er með BSc gráðu í næringarfræði og MSc gráðu í næringar- og matvælafræði, auk þess gaf hún út bókina Næringin skapar meistarann árið 2021. Elísa hefur mikla reynslu úr íþróttum þar sem hún hefur spilað fjöldann allan af landsleikjum í knattspyrnu fyrir Íslands hönd ásamt því að hafa spilað erlendis og verið fyrirliði í Íslandsmeistaraliði Vals. Elísa hefur haldið fjölda fyrirlestra fyrir hina ýmsu einstaklinga, fyrirtæki og íþróttafélög. Hún brennur fyrir að hjálpa fólki að ná tökum á næringunni með heilbrigðum hætti.



















