Iðan fræðslusetur
Iðan fræðslusetur
Iðan fræðslusetur

Krosslímdar timbureiningar

Námskeið fyrir þau sem vinna með krosslímdar timbureiningar (CLT) vilja fræðast um gerð og tegundir þeirra og helstu eiginleika.

Fyrir hverja:

Þetta námskeið er fyrir þau sem vinna við meðferð og uppsetningu á húsum úr krosslímdum timbureiningum (CLT).

Markmið:

Markmið með námskeiðinu er að fræða þátttakendur um gerð, eiginleika og meðferð CLT eininga við byggingaframkvæmdir.

Á námskeiðinu verður fjallað um:

  • Gerð og tegundir CLT timbureininga.
  • Helstu eiginleika þeirra og notkunarsvið.
  • Rakaástand eininga á uppsetningartíma og varnir á viðkvæmum stöðum í samsetningum. 
  • Raka í timbri, útþornun,  mælingaaðferðir og geymslu á byggingarstað.
  • Sérstöðu Íslands veðurfræðilega séð og áskoranir henni tengdar.

Að loknu námskeiði á nemandi að:

  • Þekkja helstu tegundir CLT timbureininga og eiginleika þeirra.
  • Vita hvernig verja skal krosslímdar timbureiningar á byggingastað og við uppsetningu.
  • Þekkja til séríslenskra aðstæðna varðandi veðurfar og raka.
Hefst
19. nóv. 2026
Tegund
Staðnám
Tímalengd
1 skipti
Deila
Senda í Messenger
Deila með öðrum
Afrita hlekk
Flokkar